Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Kjartan Kjartansson skrifar 20. október 2026 15:18 Selenskí faðmar Steve Witkoff, sendifulltrúa Bandaríkjanna, að sér þegar þeir hittust í Osló. Til hliðar standa Stubb Finnlandsforseti (t.v.) og Jonas Gahr Støre, norski forsætisráðherrann, (t.h.) sposkir á svip. Vísir/EPA Volodýmýr Selenskí, forseti Úkraína, ásamt evrópskum bandamönnum fundar nú með fulltrúa Bandaríkjastjórnar í Osló í skugga áframhaldandi harðra árása Rússa á landið. Bandaríkjastjórn hefur nálgast verulega stjórnvöld í Kreml að undanförnu.
Steve Witkoff, sérstakur sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar, sem hefur verið tíður gestur í Moskvu að undanförnu hitti Selenskí í Osló í dag. Johans Gahr Støre. forsætisráðherra Noregs, og Alexander Stubb, forseti Finnlands, funda einnig með Selenskí þar. „Við höldum öllum samskiptum opnum sem geta leitt til friðar,“ skrifaði Selenskí á samfélagsmiðli skömmu eftir komuna til Noregs. Fundurinn er haldinn á umrótatíma í samskiptum Bandaríkjastjórnar við úkraínsk stjórnvöld. Donald Trump Bandaríkjaforseti ákvað í síðustu viku að gera samning við Rússa um kaup á olíu, nokkuð sem Bandaríkjastjórn hefur þrýst á önnur ríki að gera ekki um margra mánaða skeið. Þá ákvað hann að framfylgja ekki refsiaðgerðum gegn Rússum sem Bandaríkjaþing samþykkti í haust. Trump hefur jafnframt deilt hart á Selenskí og sagt að Úkraínumenn ættu að velja sér annan forseta. Á sama tíma hafa Úkraínumenn fengið takmarkaðan aðgang að gervihnattaupplýsingum, sem Bandaríkjamenn hafa séð þeim fyrir, sem hafa hjálpað þeim að verjast rússneskum sjálfsprengidrónum. Úkraínumenn hafa einnig kvartað undan því að fá ekki lengur viðvaranir um skotflaugaskot Rússa. Einnig hafa borist fréttir af því að Bandaríkjamenn hafi komið í veg fyrir að bandalagsríki Úkraínu sendi þangað skotfæri í bandarískt Patriot-loftvarnakerfi þrátt fyrir að þegar sé búið að greiða fyrir þau. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, neitaði að Bandaríkjastjórn héldi eftir aðstoð við Úkraínu. Hann er nú í opinberri heimsókn til Indlands. „Það hefur ekki verið gefin út nein meðvituð pólitísk tilskipun um að skaða Úkraínu,“ sagði Rubio.
Noregur Úkraína Bandaríkin Donald Trump Evrópusambandið Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira