Innlent

Dóms­mála­ráð­herra fær nýjan að­stoðar­mann

Kjartan Kjartansson skrifar
Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir, nýr aðstoðarmaður dómsmálaráðherra.
Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir, nýr aðstoðarmaður dómsmálaráðherra. Stjórnarráðið

Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir er nýr aðstoðarmaður Þorbjarga S. Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra. Tveir fyrri aðstoðarmenn ráðherrans hættu störfum fyrr á árinu.

Fyrir á fleti er Þórdís Valsdóttir aðstoðarmaður dómsmálaráðherra. Ásta Sóllilja er sögð munu starfa með Þórdísi í tilkynningu frá stjórnarráðinu um ráðninguna.

Ásta Sóllilja er hæstaréttarlögmaður og vann lengi sem lögfræðingur hjá innanríkisráðuneytinu. Undanfarin ár hefur hún verið lögmaður hjá ríkislögmanni. Hún er sögð verða í tímabundu leyfi frá störfum sínum hjá embættinu á meðan hún gegnir embætti aðstoðarmanns ráðherra.

Nokkur starfsmannavelta hefur verið í röðum aðstoðarmanna dómsmálaráðherra á þessu ári. Jakob Birgisson hætti í mars og sagðist þá ætla að snúa sér að uppistandi. Síðar gekkst Jakob þó við kynferðislegri áreitni í garð samstarfskonu í ráðuneytinu sem átti sér stað þegar hann var aðstoðarmaður ráðherrans.

Þórólfur Heiðar Þorsteinsson, hinn aðstoðarmaður Þorbjargar, sagði starfi sínu lausu í ágúst. Bæði hann og Jakob höfðu verið aðstoðarmenn Þorbjargar frá því fljótlega eftir að hún tók við embætti í lok árs 2024.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×