Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Bjarki Sigurðsson skrifar 4. nóvember 2026 08:53 Vilhjálmur Árnason er bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Vísir/Vilhelm Meirihluti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar hefur lagt til að framvegis verði haldið utan um þann vinnutíma sem starfsmenn sveitarfélagsins verja í að svara fyrirspurnum kjörinna fulltrúa eftir það sem þeir kalla „fyrirspurnarfaraldur“ forvitins minnihluta. Þá verði samhliða birtur áætlaður launakostnaður við úrvinnslu fyrirspurnanna.
Á fyrstu fimm mánuðum kjörtímabilsins hafi borist rúmlega nífalt fleiri fyrirspurnir frá minnihlutanum samanborið við fyrstu fimm mánuði síðasta kjörtímabils. 2022 voru fyrirspurnirnar tvær með níu spurningum en í ár nítján með 76 spurningum. „Hér er einfaldlega um sláandi tölfræði að ræða og getur aðeins verið útskýrð af pólitískum hvötum,“ segir í bókuninni. Meirihlutinn líkir þessu fyrirspurnaflóði við vinnubrögð Pírata á Alþingi. „Þessi mikla fjölgun fyrirspurna hefur í för með sér verulegt viðbótarálag á starfsmenn sveitarfélagsins. Að baki skriflegum svörum liggur oft umfangsmikil vinna við upplýsingaöflun, samantektir, útreikninga og yfirferð gagna. Sá tími er ekki ótakmörkuð auðlind og fer óhjákvæmilega frá öðrum verkefnum sem starfsfólki sveitarfélagsins er ætlað að sinna í þágu bæjarbúa,“ segir í bókuninni. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (t.v.) er oddviti Framsóknar og Guðný Birna Guðmundsdóttir oddviti Samfylkingar.Vísir/Vilhelm Í dag mynda Sjálfstæðismenn og Miðflokkurinn meirihluta en Sjálfstæðisflokkurinn var í minnihluta á síðasta kjörtímabili þegar fyrirspurnirnar voru færri. Miðflokkurinn var þá ekki með kjörinn fulltrúa. Forvitni minnihluti þessa kjörtímabils samanstendur af Samfylkingu og Framsókn sem voru í meirihluta á síðasta kjörtímabili. „Meirihlutinn leggur ríka áherslu á gagnsæi í stjórnsýslu Reykjanesbæjar og virðir mikilvægan rétt minnihlutans til upplýsingaöflunar og lýðræðislegs aðhalds. Meirihlutinn telur eðlilegt að minnihlutinn velti því fyrir sér hvort allar þær fyrirspurnir sem lagðar eru fram kalli á umfangsmikla skriflega úrvinnslu eða hvort afla megi hluta upplýsinganna með einfaldari hætti,“ segir í bókuninni.
Reykjanesbær Sveitarstjórnarmál Sjálfstæðisflokkurinn Rekstur hins opinbera Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Sjá meira