Erlent

Verð­launaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki sam­tímans

Kjartan Kjartansson skrifar
Fulltrúar Nóbelsnefndarinnar og sænska seðlabankans kynna verðlaunahafana í hagfræði árið 2026, þá Robert E. Hall og Michael Woodford frá Bandaríkjunum.
Fulltrúar Nóbelsnefndarinnar og sænska seðlabankans kynna verðlaunahafana í hagfræði árið 2026, þá Robert E. Hall og Michael Woodford frá Bandaríkjunum. Vísir/EPA

Tveir bandarískir hagfræðingar hlutu hagfræðiverðlaun Seðlabanka Svíþjóðar fyrir að framlag þeirra til bættra hagstjórnartækja samtímans. Þeir lögðu rekstrarhagfræði til grundvallar þjóðarhagfræðilegra líkana sem eru sögð hafa hjálpað til við peninga- og fjármálastefnu og dregið úr sveiflum.

Robert E. Hall frá Stanford-háskóla og Michael Woodford frá Columbia-háskóla hljóta hagfræðiverðlaunin sem eru til minningar um Alfreð Nóbel í morgun. Ólíkt sjálfum Nóbelsverðlaununum sem sænska vísindaakademían útdeilir er það sænski seðlabankinn sem velur verðlaunahafanna í hagfræði.

Nýjungin sem þeir Hall og Woodford eru sagðir hafa bryddað upp á var að byggja hagfræðilíkön sín ekki aðeins á tölfræðilegri fylni á milli þjóðhagslegra þátta eins og verðbólgu, framleiðni og neyslu heldur á áhrifum heimila og fyrirtækja á hagkerfið.

„Frá því að nýju líkönin komu til sögunnar hafa þau reynst afar gagnleg í að glíma við efnahagslegar niðursveiflur sem við höfum lent í,“ segir í rökstuðningi sænska seðlabankans.

Gömlu hagstjórnartækin sem byggðust á kenningum John Maynard Keynes, enska hagfræðingsins, gengu út á að menn lækkuðu stýrivexti og ykju ríkisútgjöld í kreppum en það gagnstæða þegar hagkerfið ofhitnaði.

Þær aðferðir hafi hins vegar litlum árangri skilað í olíukreppunum á áttunda ártug síðustu aldar. Í stað þess að draga úr atvinnuleysi leiddu þær til óðaverðbólgu. Árin einkenndust af viðvarandi atvinnuleysi, verðbólgu og litlum hagvexti á vesturlöndum.

„Rannsóknir verðlaunahafanna veittu okkur stöðugan fræðilegan grunn fyrir þau líkön sem seðlabankar og ríkisstjórnir um allan heim nota núna. Við erum betur í stakk búin að takast á við efnahagsáföll með þeim, þar á meðal orkukreppur eða skyndilegar breytingar í neyslu heimila,“ segir John Hassler, formaður hagfræðiverðlaunanefndarinnar.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×