Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur Hjörvar Ólafsson skrifar 9. október 2026 21:36 Grindavík hefur titilvörnina í dag þegar liðið tekur á móti bikarmeisturunum í KR. Siggi/Vísir KR fór með sigur af hólmi þegar liðið sótti ríkjandi Íslandsmeistara, Grindavík, heim í HS Orku-höllina í fyrstu umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld. Bæði lið mættu löskuð til leiks en DeAndre Kane er ekki kominn til landsins og Ólafur Ólafsson og Daniel Mortensen eru að glíma við meiðsli. Hjá KR var Þórir Þorbjarnarson fjarri góðu gamni vegna tognunar í kálfa og bandaríski leikmaður liðsins, Rashun Davis, er ekki kominn með leikheimild. KR-ingar byrjuðu leikinn betur og komust 10-2 yfir en þá hrukku Grindvíkingar í gang og staðan var jöfn, 18-18 eftir fyrsta leikhluta. Heimamenn með Jeremy Pargo í broddi fylkingar áttu góðan annan leihluta og voru 38-33 yfir þegar liðin röltu til búningsklefa í hálfleik. Leikmenn KR náðu að herða tökin í varnarleik sínum og auka hraðann í sóknarleiknum í seinni hálfleik og fóru að lokum með 11 stiga sigur, 91-80, af hólmi. Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, hefði viljað sjá betra hugarfar hjá sínum leiknönnum. Vísir/Guðmundur Jóhann Þór: Viðhörf leikmanna angrar mig „Það eru kaflar í þriðja og fjórða leikhluta sem fara með leikinn hjá okkur. Við fórum út úr því leikskipulagi sem við settum upp og fórum að sætta okkur við erfið skot. Því fór sem fór,“ sagði Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, eftir leik. „Svona beint eftir leik þá er það ekki bara tapið sem pirrar mig heldur er það viðhorf leikmanna sem angrar mig miklu meira. Hvernig menn bregðast við skotum sem fara ekki ofan í og reyna ekki að bregðast almennilega við í kjölfar mistaka veldur mér hugarangri,“ sagið Jóhann Þór enn fremur. „Það vantar vissulega lykilleikmenn hjá okkur og við erum skammt á veg komnir í undirbúningnum en það þýðir ekki að leikmenn geti ekki sýnt jákvætt viðhorf, staðið saman og fylgt því sem lagt er upp með,“ sagði hann ósáttur. „Þetta er hins vegar vissulega framför frá leiknum við þá í meistara meistaranna en svona beint eftir leik er ekkert eitt frekar en annað sem gladdi mig í spilamennskunni hjá okkur. Kannski kemur það þegar ég horfi á leikinn aftur,“ sagði Jóhann. Jakob Örn: Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik „Mér fannst við flatir í fyrri hálfleik og fara niður á þann hraða sem þeir vildu hafa leikinn í. Það var ýmislegt sem pirraði mig líka í því hvernig við spiluðum vörn,“ sagði Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, að leik loknum. „Við ræddum málin í hálfleik og það var allt annað að sjá liðið í seinni hálfleik. Við náðum stoppum í vörninni og boltinn flæddi hraðar og betur í sóknarleiknum. Við erum betri þegar tempóið er hærra í leikju og það sást bersýnilega í þessum leik,“ sagði Jakob Örn þar að auki. „Það gladdi mig mikið að sjá leikmenn eins og Lars Erik og Reyni sem hafa verið að þróast og fá mikilvæga reynslu með KV koma inn og breyta leiknum hjá okkur til hins betra. Þeir komu með þann kraft sem þurfti til þess að keyra þetta áfram og sigla sigrinum í höfn,“ sagði hann. „Varnarleikurinn var heilt yfir betri í þessum leik en þegar við mættum þeim í Meistarakeppninni og það er skref í rétta átt. Ég væri hins vegar til í að sjá heilsteyptari frammistöðu með meiri ákefð í næsta leik,“ sagði Jakob. Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, var ánægður með seinni hálfleikinn hjá sínu liði. Vísir/Guðmundur Atvik leiksins Stjörnur og skúrkar Linards Jaunzems var stigahæstur á vellinum Dómarar leiksins Dómarar leiksins, þeir Sigmundur Már Herbertsson, Davið Kristján Hreiðarsson og Ingi Björn Jónsson, stigu fá sem engin feilspor og stýrðu þessum leik af röggsemi, festu og stóískri ró. Þeir fá sjö í einkunn. Stemming og umgjörð Ágætlega mætt í Grindavík í kvöld og fínasta stemming í stúkunni. Grindvíkingar eru höfðingjar heim að sækja og yfir engu að kvarta í umgjörð leiksins. Körfubolti Bónus-deild karla UMF Grindavík KR