Upp­gjörið: Grinda­vík - Haukar 81-71| Grinda­vík sterkari á loka­sprettinum

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
048A8293
vísir

Grindavík tók á móti Haukum í 2. umferð Bónus deild kvenna í kvöld. Bæði lið hafa byrjað deildina sterkt og því var ljóst að hart yrði barist í HS Orku-höllinni í kvöld. Eftir frábæran lokasprett var það Grindavík sem hafði betur með tíu stigum 81-71.

Haukar áttu fyrstu stig leiksins en gestirnir frá Hafnarfirði mættu með krafti fyrstu mínúturnar og spilaði af hörku á báðum endum vallarins. Haukar spiluðu í bleikum búningum í kvöld til styrkar bleiku slaufunni og þær leiddu leikinn á upphafsmínútum.

Eftir því sem leið á leikhlutann óx Grindavík meira og meira inn í leikinn og þær tóku fljótlega yfir þar sem Haukar áttu fá svör við leik Farhiya Abdi. Eftir fyrsta leikhluta leiddi Grindavík 27-25.

Stigin létu bíða eftir sér í öðrum leikhluta en mikil harka einkenndi byrjunina á öðrum leikhluta. Þegar rúmlega þrjár mínútur voru liðnar af leikhlutanum náði Abby Beeman að skera á hnútinn og setja gott skot í teignum fyrir Grindavík. Baráttan var allsráðandi.

Grindavík átti 10-0 kafla áður en Haukar náðu að koma stigi á töfluna í öðrum leikhluta en fyrstu stig Hauka í leikhlutanum komu eftir rúmlega sjö mínútna leik. Tinna Guðrún Alexandersdóttir átti þá langan tvist og fagnaði bekkur Hauka vel þegar ísinn loks brotnaði.

Haukar skoruðu sjö stig til viðbótar í röð áður en Hulda Björk Ólafsdóttir lokaði fyrri hálfleiknum með flautuþrist fyrir Grindavík. Staðan þegar gengið var til hálfleiks var 40-34 Grindavík í vil.

Gestirnir frá Hafnarfirði mættu grimmar út í seinni hálfleikinn og um miðbik þriðja leikhlutans jafnaði Tinna Guðrún Alexandersdóttir leikinn fyrir Hauka og koma þeim svo yfir.

Frábær leikhluti hjá gestunum og þær snéru leiknum sér í hag og leiddu eftir þriðja leikhluta 58-60.

Það var mikil barátta í fjórða leikhluta og leikurinn í járnum. Liðin skiptust á að setja stór skot og ljóst að það var lítið sem skar á milli liðana.

Á endanum var það Grindavík sem reyndist sterkari en þær settu stór skot sem Haukar náðu ekki að halda í við og fóru að lokum með tíu stiga sigur 81-71.

Atvik leiksins

Tegan Graham setti mikilvægan þrist úr horninu seint í fjórða leikhluta sem gaf Grindavík andrýmið sem þær þurftu. Tilfinningin á vellinum var þannig að þetta hafi verið smiðshöggið sem þurfti til að klára þennan leik.

Stjörnur og skúrkar

Abby Beeman var frábær í liði Grindavíkur. Hún endaði stigahæst með 22 stig en hún gaf einnig 12 stoðsendingar og var allt í öllu fyrir Grindavík.

Tegan Graham setti líka mikilvæg stig á töfluna á mikilvægum tímapunktum sem og Isabella Ósk Sigurðardóttir sem reif einnig niður 12 fráköst.

Hjá Haukum var Tinna Guðrún Alexandersdóttir að setja stóru stigin. Hún endaði stigahæst í liði Hauka með 18 stig.

Dómararnir

Sigmundur Már, Ingi Björn og Einar Valur sáu um flautuna í kvöld og hef ég ekkert upp á þeirra frammistöðu að kvarta. Fannst þeir komast bara vel frá sínu í kvöld.

Stemning og umgjörð

Stemningin var góð í Grindavík í dag. Umgjörðin hérna í HS Orku höllinni er alltaf upp á tíu. Það er ekkert eðlilega skemmtilegt að tímabilið í körfubolta sé komið af stað.

Viðtöl

Pétur Már Sigurðsson tók við liði Grindavíkur fyrir tímabilið.Vísir/Hulda Margrét

„Við vorum sterkari hérna í restina og náðum að klára þetta“

„Ánægður að hafa unnið. Þetta var hörku leikur og það er erfitt að spila á móti þessu Haukaliði“ sagði Pétur Már Sigurðsson þjálfari Grindavíkur.

„Þær eru löngum tímum bara með fimm bakverði inni á vellinum og það hentar illa á móti stóru stelpunum okkar en þær voru að gera vel. Þær voru hörku góðar og eru vel þjálfaðar“

„Þetta var góður karakter sigur og við vorum sterkari hérna í restina og náðum að klára þetta“

„Það er margt sem að við þurfum að læra af og bæta í okkar leik en við höfum tíma til þess“

Helsti munurinn á milli liðana að mati Péturs er leikstíll liðana.

„Það er gjörólíkur leikstíll. Við spilum með stórar sterkar stelpur og þær eru með mikið af bakvörðum og léttleikandi. Það er mjög erfitt að dekka þær en þetta var krókur á móti bragði og það var bara svolítið svoleiðis“

„Það er líkamlegur munur á þeim en ég er mjög hrifinn af þessu Haukaliði“ sagði Pétur Már Sigurðsson.

Viktor Marinó Alexandersson tók við liði Hauka.

„Stundum dettur þetta bara með hinu liðinu“

„Slæmir kaflar á vondum tímum sem að við í þjálfarateyminu hefðum kannski geta brugðist við fyrr en mér fannst við vera fá opin færi í gegnum allan leikinn“ sagði Viktor Marinó Alexandersson þjálfari Hauka eftir tapið í kvöld.

„Mér fannst við bregðast vel við því sem að þær voru að gera og við erum yfir rétt áður en að mikilvægasti tíminn er til að vera yfir þannig heilt yfir þá er það þar sem að þetta klikkar“

Leikurinn var í járnum lengst af í fjórða leikhluta en hvað var það sem gerðist sem hleypti Grindavík tíu stigum fram úr?

„Mögulega þreyta, við æfum okkur að skjóta í mikilli snertingu og þetta voru opin skot sem að við vorum að fá og kannski þurfum við bara að skjóta meira ekki í snertingu og skjóta þreyttar“

„Stundum dettur þetta bara með hinu liðinu og þetta voru góð skot. Við erum með fullt af góðum skotmönnum og ég hefði kannski átt að stoppa þetta fyrr og teikna eitthvað fyrir þær eða leita af einhverju öðru en þetta fór svona í dag og kannski þurftum við bara þetta smá högg til að koma okkur áfram“

Þóra Kristín Jónsdóttir hefur ekki verið með Haukum í upphafi móts en hún hefur verið að glíma við meiðsli.

„Hún er meidd og bara áfram ekki með þangað til að annað kemur í ljós“ sagði Viktor Marinó Alexandersson.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira