Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent Bjarki Sigurðsson skrifar 29. september 2026 10:18 Mast vann skýrsluna. Vísir/Vilhelm Mikil aukning var í heildarsölu sýklalyfja fyrir dýr árið 2025. Staðan á Íslandi hvað varðar sýklalyfjaónæmi er sögð góð samanborið við stöðuna í öðrum Evrópuríkjum.
Þetta kemur fram í ársskýrslu Matvælastofnunar (MAST) og Embættis landlæknis. Þar var sýklalyfjanotkun og sýklalyfjanæmi baktería hjá mönnum og dýrum á Íslandi kannað. Heildarsala sýklalyfja fyrir dýr jókst um 21,4 prósent frá fyrra ári. Aukningin er sögð skýrast meðal annars af áframhaldandi sýklalyfjameðferð vegna kýlaveikibróðurs í landeldi á bleikju. „Sýklalyfjanotkun vegna kýlaveikibróðurs í bleikjueldi hefur nú verið viðvarandi um nokkurra ára skeið og á áfram stóran þátt í heildarsölu sýklalyfja hjá dýrum á Íslandi. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að fylgjast áfram með þróun sýklalyfjanotkunar hjá einstökum dýrategundum og stuðla að ábyrgri og markvissri notkun sýklalyfja,“ segir í tilkynningu á vef MAST um skýrsluna. Sala sýklalyfja til annarra dýrategunda jókst þó einnig. „Önnur mikilvæg niðurstaða ársins var að búfjártengdur meticillínónæmur Staphylococcus aureus (MÓSA) greindist í fyrsta sinn við skipulega skimun í íslenskum svínum. Bakterían fannst í fjórum nátengdum svínabúum. Búfjártengdur MÓSA er vel þekktur í svínarækt í Evrópu en hafði ekki áður greinst í íslenskum svínum og sýnir mikilvægi skimunar,“ segir í tilkynningunni. MÓSA greindist í fyrsta sinn við skipulega skimun í íslenskum svínum. Heildarsala sýklalyfja til manna dróst saman um 4,6 prósent milli ára. Árið 2025 voru skilgreindir dagskammtar á hverja þúsund íbúa 18,6 á dag. „Sýklalyfjaónæmi er enn almennt lítið á Íslandi í evrópskum samanburði, en þróun ákveðinna gerða ónæmis veldur áhyggjum. Árið 2025 greindust 22 einstaklingar með karbapenemasa-myndandi Enterobacterales (CPE), fleiri en nokkru sinni áður á einu ári,“ segir í tilkynningunni.
Dýr Lyf Dýraheilbrigði Matvælaframleiðsla Matvælastofnun Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira