Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Freyja Þórisdóttir skrifar 28. september 2026 19:24 Grunnskólakennarinn Ragnheiður Stephensen telur Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, ekki gera sér fyllilega grein fyrir því hversu umfangsmikla breytingu hún hafi verið að leggja fram. Aðsend/Vísir/Viktor Freyr Grunnskólakennari spyr í hvaða vitleysu einkunnakerfi hérlendis séu stödd. Reglugerð um nýja einkunnagjöf sem eigi að vera innleidd í vor sé ekki úthugsuð en það þurfi fyrst að breyta aðalnámskrá og því næst eigi að setja upp kvarða sem passi fyrir þá aðalnámskrá. Það sé skammsýni að telja að nýr kvarði verði breyting til hins betra.
Ragnheiður Stephenssen er stærðfræðikennari í Garðaskóla en hún var gestur í Reykjavík Síðdegis í kjölfar þess að hún skrifaði skoðanagrein þar sem hún snerti á reglugerð um nýja einkunnagjöf. Fyrirsögn greinarinnar er „Í hvaða vitleysu erum við stödd?“ en þar segir Ragnheiður mennta- og barnamálaráðherra ekki gera sér grein fyrir því hvað hún sé í raun að fara fram á að skólasamfélagið framkvæmi. Það sé, eins og svo oft áður, verið að byrja á öfugum enda. Það þurfi að fara í algjöra upptöku á aðalnámskrá og gera hana að vinnutæki sem hægt sé að vinna eftir þar sem skólar geti séð hversu mikið á dýptina þeir eigi að fara í fögunum í grunnskólunum og hvar framhaldsskólinn taki við. „Þessi fyrirsögn eiginlega sprettur svolítið af því að það er verið að ætlast til þess að við séum að taka kvarða sem er alveg samofinn okkar kerfi sem er 1-10 og breyta honum í eitthvað annað sem hann er ekki,“ sagði Ragnheiður í viðtali í nýjasta þætti Reykjavík Síðdegis. „Ef við ætlum að breyta kvarða nú þurfum við að breyta því sem kvarðinn byggir á, sem er aðalnámskráin,“ sagði hún jafnframt. Nú eigi að breyta kvarðanum úr A til D yfir í tölustafi en ekki 0 til 10 heldur 4 til 10. Tölur hafi ákveðna merkingu Ragnheiður segist ekki setja sig upp á móti því að það sé verið að breyta aftur yfir í tölustafi en að það sé framkvæmdin á ferlinu sem hún setji spurningarmerki við. „Ég er ekkert á móti tölum sem stærðfræðikennari. Ég er mjög hrifin af tölum en þú ert að fara að ætlast til þess að tölur sem að hafa bara ákveðna merkingu í okkar lífi. Þú veist, fyrir okkur er 10 bara 100 prósent og 8 er bara 80 prósent og þú ert að fara að setja þetta á kerfi sem byggist allt öðruvísi upp,“ sagði hún í viðtalinu. Nú verða bókstafirnir að tölum en Ragnheiður útskýrði það í stuttu máli svona fyrir þáttastjórnendum Reykjavík Síðdegis: „Þú varst með eitthvað sem heitir D og það heitir núna fjórir og svo varstu með eitthvað sem heitir C en nú á það að heita fimm og svo varstu með eitthvað sem heitir C+, það heitir 6 og svo varstu með eitthvað sem heitir B, það á að heita 7 eða 8,“ sagði hún og benti í beinu framhaldi á það hversu einkennilegt henni þætti að A væri fyrir þá nemendur sem væru búnir að læra umfram það sem er ætlast til af þeim. Til dæmis þeir nemendur sem klára allt námsefni fyrir sitt aldursár og fá þá að læra efni sem er ætlað eldri nemendum. Ragnheiður snerti einnig á því í skoðanagreininni hvað bókstafaskalinn væri „meingallaður“ að hennar mati. „Í gildandi aðalnámskrá er skilgreindur sá kvarði sem á að nota og það er A til D. Hann er samt sem áður meingallaður því þetta er kvarði þar sem A þýðir framúrskarandi, þ.e.a.s. nemandi er með hæfni umfram það sem farið er fram á að hann læri í skóla. Það eitt og sér er í rauninni mjög merkilegt því ef þið spáið í því þá er í raun ekki hægt að segja að einhver sé með eitthvað umfram ef það er hvergi skilgreint hver grunnurinn er.“ Fjármagnið ekki nægilegt Hún sagðist telja að fyrirstaðan fyrir því að rétt leið að breytingunni, að aðalnámskrá væri breytt fyrst og svo nýir kvarðar kynntir til leiks, hefði verið væri kostnaður við vinnuafl en miðað við það sem lagt hafi verið í menntamál síðustu ár væri ekki til nægt fé til þess að sjá þá breytingu verða að veruleika. Ef maður getur 70 prósent af einhverju prófi þá fær maður bara sjö, er það ekki? „Nei, það er ekki þannig, sko. Þetta snýst um, ertu búinn að ná ákveðinni hæfni? Og ef þú ert búinn að ná bara nógu góðri hæfni þá færðu sjö. Og núna ef þú ert búinn að ná henni svolítið rýmilega þá geturðu fengið átta. Og svo ef þú kannt eitthvað, ertu búinn að ná henni mjög vel og svona aðeins rýmri það, þá geturðu fengið B plús,“ sagði Ragnheiður en svo þurfi að vera framúrskarandi til að fá tíu. „Þannig að ef verkefnin sem slík eru samin miðað við hæfniviðmiðin þannig að þetta er bara „hæfni náð“ þá geturðu verið með hundrað prósenta prófun en þú færð bara átta.“ Hún sagðist hafa reynt að láta nemendur sína finna sem minnst fyrir innleiðingu nýs kerfis en hún skrifaði í skoðanagreininni að nemendur 10. bekkjar og forráðamenn þeirra bíði í óvissu því enginn viti almennilega hvernig námsmatinu verði háttað. Kennarar séu þreyttir á þessu Nú séu nemendur senn að ljúka sinni fyrstu námslotu og þau sem séu á gólfinu viti í raun ekki hvernig þeim beri að koma niðurstöðunum til þeirra um hvernig þeim hafi gengið. Hvernig er umræðan á kennarastofunni? „Við erum auðvitað bara mjög þreytt á þessu. Við erum búin að reyna, aðallega ég, að vera að tjá mig um þetta,“ sagði Ragnheiður en að það væri annað viðamikið vandamál sem blasti við þegar umræðan færðist yfir í skort á námsefnisgerð. „Ég er að kenna bók sem var samin árið 1986. Ég var sjálf í prufuhóp fyrir þetta námsefni þegar ég var í Garðaskóla í 10. bekk,“ sagði Ragnheiður og ítrekaði að það væri sama námsefni kennt núna vegna þess að þetta væri það besta sem væri í boði. Það sé því víða pottur brotinn í menntamálum hérlendis en að hennar mati væri eitt af því sem þurfi að breyta sem fyrst að samræma einkunnaskala svo að nemendur, forráðamenn og kennarar geti skilið hvernig nemendunum gangi í skólanum. Ragnheiður, ef þú ert með Ingu Sæland hérna við hliðina á þér eða hún er að hlusta á okkur, eru einhver skilaboð til hennar frá þér? „Inga Sæland er með eldmóð þó að hún geti stundum farið svolítið yfir strikið, en hún er virkilega að berjast fyrir þessu. En þetta verður að vera faglegt og það er ekki faglegt að vera með breytingu á skala í beinni útsendingu á meðan það er verið að vinna það. Við hefðum þurft að vinna þetta ár. Og nemendur hefðu bara þurft að vera í sama umhverfi og þeir voru. Og síðan hefði hluturinn þurft að vera tilbúinn. En þú treður heldur ekki kvarða upp á hérna fólk sem er samofið samfélaginu sem er 1-10 og ætlast til að fólk fari að skilja eitthvað betur þegar þetta þýðir eitthvað allt annað.“
Skóla- og menntamál Grunnskólar Framhaldsskólar Garðabær Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira