Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Bjarki Sigurðsson skrifar 25. september 2026 10:17 Ráðherrar ætla ekki að veita viðtöl eftir ríkisstjórnarfund í dag eins og venjan er. Vísir/Viktor Freyr Ráðherrar munu ekki veita viðtöl að loknum ríkisstjórnarfundi í dag, líkt og venjan er, þar sem þeir þurfa að þjóta á aðra fundi. Fyrrverandi ráðherra ríkisstjórnarinnar hefur sakað aðra ráðherra um lygar í tengslum við afsögn hans.
Ríkisstjórnin fundar alla þriðjudaga og föstudaga. Að fundi loknum er venjan að fjölmiðlar fái viðtöl við ráðherra en það hefur reynst erfitt að hitta á þá utan þess glugga. Stundum þurfa ráðherrar að þjóta á Alþingi til að taka þátt í atkvæðagreiðslum eða umræðum og geta ekki veitt viðtöl. Í dag er þó enginn þingfundur. Í samtali við fréttastofu segir Kristín Ólafsdóttir, aðstoðarmaður Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, að ekki sé hægt að veita viðtöl eftir fund þar sem ráðherrar séu á leið á aðra fundi eftir ríkisstjórnarfund. Eru fjölmiðlar beðnir um að hafa samband við aðstoðarmenn þeirra ráðherra sem þeir vilja ræða við og athuga með viðtal seinna í dag. Kristrún mun ekki veita símaviðtal fyrir hádegisfréttir Bylgjunnar en í samtali við fréttastofu í gær sagði hún að Guðmundur hafi sjálfur tekið þá ákvörðun að segja af sér. Það hafi verið rétt ákvörðun og að ríkisstjórnarsamstarfi væri gott þrátt fyrir þetta mál. Mál Guðmundar Inga Kristinssonar, fyrrverandi ráðherra þessarar ríkisstjórnar, eru nú í hámæli og hefur hann sakað Ingu Sæland, formann Flokks fólksins og barnamálaráðherra, um að reyna að bola sér inn á sjúkrastofu þar sem hann lá eftir hjartaaðgerð. Í ráðherratíð Guðmundar var Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir aðstoðarmaður hans. Guðbjörg er jafnframt eiginkona Ragnars Þórs Ingólfssonar félagsmálaráðherra sem kom inn í ríkisstjórnina í stað Guðmundar. Í gær birti Guðmundur Ingi skilaboð frá Guðbjörgu síðan hann lá á sjúkrastofu þar sem hún segir honum að það séu í raun tveir kostir í stöðunni, að fara í veikindaleyfi eða „stríð“. Það ætlaði allt að keyra um koll á Alþingi þegar Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, gekk á Ingu varðandi ummælin í óundirbúnum fyrirspurnartíma líkt og sjá má hér. Ragnar Þór var ekki til svars vegna veikinda.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Flokkur fólksins Afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Segir stjórnina láta hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Sjá meira