Handbolti

Elín Klara slær í gegn og upp­fyllir brátt draum sinn

Aron Guðmundsson skrifar
Elín Klara Þorkelsdóttir hefur slegið í gegn með meistaraliði Savehof og tekur brátt skrefið í stærri deild sem henni hefur dreymt um að spila í.
Elín Klara Þorkelsdóttir hefur slegið í gegn með meistaraliði Savehof og tekur brátt skrefið í stærri deild sem henni hefur dreymt um að spila í. Vísir/Sigurjón

Elín Klara Þor­kels­dóttir, leik­stjórnandi ís­lenska lands­liðsins, er á leið til danska stór­liðsins Ikast á næsta ári eftir draum­kennda byrjun í at­vinnu­mennskunni í Svíþjóð. Hún upp­fyllir brátt draum sinn og er hvergi nærri hætt.

Það er ekki annað hægt að segja en að Elín Klara hafi tekið at­vinnu­mennskuna með trompi. Strax á fyrsta tíma­bili með sænska stór­liðinu Sa­vehof skaraði hún fram úr og leiddi sókn liðsins í átt að sænska meistara­titlinum. Sókn sem skilaði titli og nafn­bótinni besti leik­maður deildarinnar.

Klippa: Elín Klara sló strax í gegn og varð eftirsótt

Frammistaðan vakti at­hygli og nú hefur danska stór­liðið Ikast tryggt sér þjónustu Elínar Klöru frá og með næsta tíma­bili. Skref fram undan í sterkari deild.

„Það hefur alltaf verið draumur hjá mér að spila í dönsku deildinni, enda virki­lega sterk deild og svo kemur þetta bara upp með Ikast og hérna, náttúru­lega bara ótrú­lega stór og flottur klúbbur og ein­mitt bara, mér leist ótrú­lega vel á þetta og hérna, er bara virki­lega stolt af þessu.“

Hver er að­dragandinn að þessu? Er langt síðan þú heyrðir af áhuga liðsins?

„Já, þetta kom upp á síðasta tíma­bili eftir áramót. Mig minnir að það hafi verið í febrúar eitt­hvað svo­leiðis þannig að þetta er eigin­lega búið að vera í loftinu svolítið lengi, þá kom upp áhuginn. Mér leist ótrú­lega vel á þetta um leið og það hefur ein­mitt líka alltaf verið mark­mið hjá mér að fara til Dan­merkur. Ég hugsa að þetta sé deild sem hentar mér mjög vel, hröð deild.

Markmiðið og draumurinn

Talandi um Dan­mörku, er þetta ekki bara klárt skref upp á við þegar maður horfir á styrk deildarinnar og svo liðið sjálft?

„Jú, al­gjör­lega. Ég er búin að vera á frábærum stað hérna í Svíþjóð. Svo var þetta svolítið mark­miðið hjá mér að taka hérna fyrsta skrefið hingað út til Svíþjóðar og fara síðan til Dan­merkur. Ég hugsa að þetta sé mjög gott skref og frábært að vera í framtíðarplönum Ikast.“

Hin 21 árs gamla Elín Klara aðlagaðist at­vinnu­mennskunni fljótt.

Kom það þér á óvart hversu vel þú náðir að byrja þennan kafla?

„Já, það gerði það alveg. Þetta er náttúru­lega bara stórt skref, að flytja að heiman og allt það og búa er­lendis. En svo byrjar maður þennan kafla og aðlagast. Þetta er bara hand­bolti, ég er líka með frábæra liðs­félaga. Það var tekið ótrú­lega vel á móti mér. Ég held að það hafi hjálpað. Þetta er gott um­hverfi, góður klúbbur, mér líður vel hérna. Ef manni líður vel þá spilar maður vel þannig að ég hugsa að það hafi líka hjálpað ótrú­lega mikið.

Fann fyrir áhuga 

Það var ekki bara Ikast sem var á eftir okkar öfluga leik­stjórnanda sem er lykilpóstur í ís­lenska lands­liðinu.

„Ég get alveg sagt að maður hafi fundið fyrir áhuga. Sér­stak­lega eftir síðasta tíma­bil og á meðan á því stóð. Mér fannst þetta ein­hvern veginn bara ágætt, að koma aftur hingað út og taka eitt tíma­bil í viðbót. Ég er bara með fulla ein­beitingu á því að gera vel á þessu tíma­bili með Sävehof. Auðvitað væri frábært að taka gullið aftur, sko. Ein­beitingin hjá mér er hér. Þessi tíðindi koma snemma á tíma­bilinu. Það er enn svolítið langt í að ég fari yfir til Ikast, þannig að fókusinn er bara allur hér í Svíþjóð og að gera vel með liðinu mínu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×