Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Árni Sæberg skrifar 10. september 2026 16:52 Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu. Vísir/Vilhelm Karlmaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur til fimm mánaða fangelsisvistar, sem er bundin skilorði til tveggja ára, fyrir kýla sambýliskonu sína með þeim afleiðingum að hún tvíkjálkabrotnaði. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til þess að hann hefði látið af áfengisneyslu aftir árásina.
Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp í dag, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir brot í nánu sambandi, með því að hafa í apríl árið 2025 á alvarlegan hátt ógnað lífi, heilsu og velferð sambýliskonu sinnar, á heimili þeirra í Reykjavík, með því að slá hana með krepptum hnefa í andlit með þeim afleiðingum að hún hlaut tvíbrotinn kjálka vinstra megin og mar í andliti, munni og munnholi. Hann hafi játað brot sitt skýlaust og því hafi málið verið dómtekið án frekari sönnunarfærslu. Við ákvörðun refsingar hafi verið litið til þess að maðurinn eigi ekki sakaferil að baki hér á landi og að skýlaus játning hans horfi honum til málsbóta. „Þá er litið til þess að ákærði lýsti eftirsjá vegna brotsins og kvaðst hafa hætt áfengisdrykkju eftir það, en í sumarleyfi í heimalandi sínu hafi hann neytt áfengis í sumar og hafi því leitað eftir áfengismeðferð sem muni hefjast síðar í þessum mánuði. Hann vilji verða betri maður.“ Á hinn bóginn vegi til þyngingar refsingu að brot hans hafi verið alvarlegt og átt sér stað í nánu sambandi þar sem hann hafi brotið gegn trausti og trúnaði brotaþola. Með hliðsjón af því þyki refsing mannsins hæfilega ákveðin fangelsi í fimm mánuði. Rétt þyki að fresta framkvæmd refsingarinnar og ákveða að hún falli niður að liðnum tveimur árum, haldi ákærði almennt skilorð.
Kynbundið ofbeldi Dómsmál Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir „Ég er náttúrlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Sjá meira