ÍBV samdi við bandarískan hermann Henry Birgir Gunnarsson skrifar 11. september 2026 08:31 Gary Phillips á ferðinni. Bandaríski hermaðurinn er sagður vera spennandi leikmaður. mynd/team handball news Það vakti talsverða athygli í gær er ÍBV tilkynnti að félagið væri að fá til sín tvo bandaríska leikmenn. Bandaríkjamenn hafa hingað til ekki verið að tefla fram öflugum handboltamönnum.
Leikmennirnir heita Gary Phillips og Parkman Cook. Sagan á bak við komu þeirra til Eyja er skemmtileg. „ÍBV spilaði við þróunarlið Bandaríkjanna í Hollandi í sumar. Ekki beint spennandi leikur enda völtuðum við yfir þá með 20 plús mörkum,“ segir Vilmar Þór Bjarnason, framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar ÍBV. Spilaði handbolta í hernum Erlingur B. Richardsson, þjálfari ÍBV, er kunnugur landsliðsþjálfara Bandaríkjamanna, Mark Ortega. Þeir ræddu málin ytra og niðurstaðan var sú að Bandaríkjamennirnir koma til Íslands í dag. „Bandaríkjamenn eru að byggja upp handboltann hjá sér fyrir næstu Ólympíuleika og voru með þróunarlið sitt á flakki um Evrópu. Þetta var ekki landsliðið þeirra heldur efnilegir leikmenn sem er verið að reyna að byggja upp. Gary Phillips var leikmaður sem vakti athygli,“ bætir Vilmar við. Phillips, 23 ára, er örvhent skytta sem á sér skemmtilega sögu. Hann er hermaður sem gekk í West Point herskólann og spilaði meira að segja handbolta þar. Hann var leikstjórnandi í amerískum fótbolta en ákvað svo að prófa eitthvað nýtt. Hann er mikill íþróttamaður og verður áhugavert að sjá hvernig hann mun þróast sem handboltamaður. „Það er mjög spennandi að fá þessa stráka til okkar og sjá hvernig þeir munu pluma sig hjá okkur,“ segir Vilmar spenntur. Óljóst er hvenær þeir félagar munu spila sinn fyrsta leik fyrir ÍBV enda eru þeir ekki orðnir löglegir sem leikmenn félagsins og á eftir að ganga frá einhverjum pappírum áður en þeir fá að skarta búningi Bandalagsins.
Handbolti Olís-deild karla ÍBV Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira