Innherji

Brýna stjórn­völd og Seðla­bankann að horfa meira á fram­boðs­hlið markaðarins

Hörður Ægisson skrifar
Gunnar Þór Gíslason er framkvæmdastjóri Langasjávar en fjárfestingafélagið er meðal annars ráðandi hluthafi í Eik ásamt því að vera stór fjárfestir í Heimum og Reitum. 
Gunnar Þór Gíslason er framkvæmdastjóri Langasjávar en fjárfestingafélagið er meðal annars ráðandi hluthafi í Eik ásamt því að vera stór fjárfestir í Heimum og Reitum.  Samsett

Stjórnendur fjárfestingafélagsins Langasjávar, sem er meðal annars umsvifamikið í verkefnum tengt byggingarstarfsemi, vara við því að langvarandi samdráttur í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis geti leitt til vaxandi spennu á húsnæðismarkaði þegar vextir taka að lækka og eftirspurn eykst á ný. Þeir brýna fyrir stjórnvöldum og Seðlabankanum að horfa í auknum mæli til framboðshliðar markaðarins með því að stuðla að umhverfi sem ýti undir fjárfestingu og uppbyggingu.


Tengdar fréttir

Vara við skarpri lækkun og vertakar og lán­veit­endur ættu að „spenna beltin“

Byggingarverktakar og lánveitendur ættu „að spenna beltin“ núna þegar framundan er verðaðlögun að greiðslugetu kaupenda á fasteignamarkaði, einkum nýbyggingum, sem gæti komið fram í allt að 25 prósenta raunverðslækkun áður en botninn verður sleginn í markaðinn snemma árs 2027, að mati greinenda ACRO. Aðgengi almennings að verðtryggðum íbúðalánum hefur í seinni tíð ekki verið jafn þröngt og núna, það muni því augljóslega eitthvað láta undan þegar kaupgetan er ekki fyrir hendi á þeim verðum sem bjóðast.

Lán­veit­endur þurfa að vera vakandi fyrir „aukinni áhættu“ í bygginga­geiranum

Vaxandi óvissa í alþjóðamálum samhliða versnandi verðbólguhorfum og væntingum um hærri vexti og hægari efnahagsumsvif gæti haft þau áhrif að það mun reyna á fjármálastöðugleika hér á landi, að mati Seðlabankans, en þjóðarbúið og fjármálakerfið stendur sterkt til að mæta þeim áskorunum. Fjármálastöðugleikanefnd brýnir einnig lánveitendur til að vera vakandi fyrir „aukinni áhættu“ í byggingageiranum en skuldir hafa þar farið vaxandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×