Innherji

Væntingar um að sam­runi Gildis og Festu skili yfir milljarði í ár­legri sam­legð

Hörður Ægisson skrifar
Davíð Rúdolfsson, framkvæmdastjóri Gildis, mun fara fyrir sameinuðum lífeyrissjóði sem verður með eignir upp á meira en 1.600 milljarða. 
Davíð Rúdolfsson, framkvæmdastjóri Gildis, mun fara fyrir sameinuðum lífeyrissjóði sem verður með eignir upp á meira en 1.600 milljarða. 

Með sameiningu lífeyrissjóðanna Gildis og Festu er áætlað að það geti skilað árlegri samlegð upp á samtals vel yfir einn milljarð, einkum vegna lægri rekstrarkostnaðar og hagstæðari kjara við erlenda eignastýringu. Ekki er gert ráð fyrir fækkun starfsfólks vegna samrunans en mögulega þarf að skerða áunnin lífeyrisréttindi sjóðfélaga þess sjóðs sem stendur lakar tryggingafræðilega til að jafna stöðu þeirra fyrir sameiningu.


Tengdar fréttir

Sam­einaður líf­eyris­sjóður fer yfir tuttugu pró­senta hlut í aðeins einu félagi

Þótt lífeyrissjóðirnir Gildi og Festa, sem hafa samþykkt að sameinast síðar á árinu, muni að óbreyttu fara með vel yfir fimmtungshlut í Reitum þá ættu þeir ekki að þurfa selja sig niður fyrir þau mörk með hraði eftir nýlegar lagabreytingar. Í júlí og ágúst stóð Gildi að umfangsmikilli sölu á bréfum í nokkrum Kauphallarfélögum fyrir samtals vel yfir tíu milljarða.

Alls staðar verið að minnka áhættusækni og dirfsku hjá stjórn­endum félaga

Einn stærsti einkafjárfestirinn í Sjóvá sagði afstöðu Gildis gegn tillögu að kaupréttaráætlun fyrir lykilstjórnendur félagsins, sem tekist var á um á nýlegum aðalfundi, vera „óskiljanlega“ og gagnrýndi að alls staðar sé verið að „minnka áhættusækni og dirfsku og draga tennurnar úr“ þegar reynt er að umbuna stjórnendum. Að sögn framkvæmdastjóra Gildis snýr gagnrýninn að skorti á skýrleika en sjóðurinn var eini hluthafinn sem greiddi atkvæði á móti kaupréttaráætluninni eftir breytingartillögu sem barst frá LSR.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×