Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Smári Jökull Jónsson skrifar 25. ágúst 2026 12:01 Hildur Björnsdóttir borgarstjóri ásamt þeim Björgu Magnúsdóttur oddvita Viðreisnar og Einari Þorsteinssyni oddvita Framsóknarflokksins. Vísir/Vilhelm Boðað var til aukafundar í borgarráði Reykjavíkur í morgun. Samkvæmt heimildum fréttastofu snerist fundurinn um uppsagnir og skipulagsbreytingar hjá að minnsta kosti tveimur sérsviðum innan borgarkerfisins en enginn þeirra borgarfulltrúa sem fréttastofa náði tali af í morgun vildi tjá sig um málið.
Borgarráð fundar venjulega á fimmtudögum en ráðið fundaði aukalega í morgun. Samkvæmt heimildum fréttastofu var fundarefnið umfangsmiklar skipulagsbreytingar og uppsagnir tuga starfsmanna hjá bæði velferðarsviði og skóla- og frístundasviði borgarinnar. Heimildir fréttastofu herma að skipulagsbreytingar tengist meðal annars svæðismiðstöðum borgarinnar en þær eru alls fjórar og á heimasíðu Reykjavíkurborgar kemur fram að þar sé meðal annars veittur stuðningur við börn, ungmenni, fjölskyldur, aldraða og fatlaða og að þar sameinist velferðarþjónusta og skóla- og frístundaþjónusta í nærumhverfi barna og ungmenna. Skýrist síðar í dag Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknarflokks og Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar hafa ekki svarað skilaboðum fréttastofu í morgun og samkvæmt upplýsingum frá samskiptateymi borgarinnar var Hildur Björnsdóttir upptekin á fundum í allan morgun. Hvorki Pétur Marteinsson frá Samfylkingu né Sanna Magdalena Mörtudóttur hjá Vinstrinu vildu tjá sig um málið og sögðu trúnað ríkja um fundargerð borgarráðs sem yrði birt á vef Reykjavíkurborgar síðar í dag. Verkefnum útvistað Í gær var greint frá að hópi skólaliða í grunnskólum Reykjavíkurborgar hefði verið sagt upp og þrifaverkefnum útvistað til einkafyrirtækja. Innkaupa- og framkvæmdaráð Reykjavíkur samþykkti í júlí að taka tilboðum Daga og Sólar í þrif á alls nítján skólum en útboðið var ákveðið í tíð fyrri borgarstjórnar. Ekki hafa fengist staðfestar tölur um hversu mörgum skólaliðum var sagt upp en auk uppsagnanna hefur útvistun þrifverkefna einnig áhrif á starfshlutfall starfsmanna.
Reykjavík Borgarstjórn Vinnumarkaður Rekstur hins opinbera Stjórnsýsla Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Fleiri fréttir Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Sjá meira