Lífið

„Brúð­kaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumar­fríið“

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Brúðhjónin voru einkar glæsileg í Landakirkju um helgina.
Brúðhjónin voru einkar glæsileg í Landakirkju um helgina. Thelma Arngrímsdóttir

Íþróttafréttakonan Edda Sif Pálsdóttir og Vilhjálmur Siggeirsson, verkefnastjóri við Háskólann í Reykjavík, giftu sig í Landakirkju í Vestmannaeyjum um helgina. Parið hefur verið saman um árabil og eiga tvo drengi saman.

Edda Sif greindi frá tíðindunum á samfélagsmiðlum sínum og sagðist ekki hafa átt von á því fyrr á árinu að hún myndi gifta sig í sumar.

„Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið en hér erum við! Snargift eftir geggjaða daga með foreldrum okkar og systkinum í Vestmannaeyjum Meira síðar!“ skrifaði hún í færslu af brúðkaupinu og birti þar fallegar myndir af brúðhjónunum.

Ólafur Jóhann Borgþórsson gaf hjónin saman.Thelma Arngrímsdóttir

Fjölskyldan í Landakirkju í Vestmannaeyjum.Thelma Arngrímsdóttir

Presturinn og Vestmanneyingurinn Ólafur Jóhann Borgþórsson gaf hjónin saman og voru feður hjónanna með þeim við altarið, Páll Magnússon og Siggeir Siggeirsson. Páll birti einnig sæta mynd af þeim feðginum á leið upp á altarið með eldri syni brúðhjónanna, Magnúsi Berg.

„Það var indælt að leiða Eddu Sif upp að altarinu í Landakirkju um helgina - í fylgd með Magga litla. Mér þótti sérstaklega vænt um að þau Villi skyldu ákveða að gifta sig hér í Eyjum,“ skrifaði Páll um brúðkaupið.

Edda og Vilhjálmur með sonum sínum, Vilhjálmi Bessa og Magnús Berg.Thelma Arngrímsdóttir

Edda um borð í brúðarbílnum.Thelma Arngrímsdóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.