Leita áfram í fyrramálið Agnar Már Másson skrifar 24. ágúst 2026 21:08 Tilkynnt var um mann sem hafði fallið í Jöklu í Stuðlagili. Landsbjörg Björgunaraðgerðir standa enn yfir í Stuðlagili við leit að manni sem féll í Jöklu fyrr í dag. Lögregla segir að dregið verði úr leitinni von bráðar þegar myrkur skellir á en henni fram haldið á morgun.
Leitin hefur ekki enn borið árangur og verður henni haldið áfram þar til viðkomandi finnst, segir í tilkynningu frá lögreglu. Þá kemur fram að dregið verði úr leitinni þegar myrkva tekur í kvöld en henni framhaldið af fullum krafti í fyrramálið þegar birta tekur. „Að aðgerðum koma m.a. lögregla, björgunarsveitir, sérsveit Ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslan, Rauði [k]rossinn, sjúkralið og slökkvilið,“ segir í tilkynningu lögreglu. Hátt í hundrað manns taka þátt í aðgerðinni frá öllum björgunarsveitum á Austurlandi en tilkynning barst um atvikið rúmlega eitt í dag. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg, sagði fyrr í dag að fyrstu viðbrögð hefðu verið að senda eins mikinn mannskap á svæðið og kostur var. Gengu björgunarsveitarmenn svo meðfram ánni frá brúnni við Klaustursel og flugu myndavéladrónum yfir svæðið. Sérstaklega var hugað að leit frá Stuðlagili þar sem síðast sást til mannsins. Þyrla Landhelgisgæslunnar kom á svæðið upp úr klukkan hálf fjögur með straumvatnsbjörgunarmenn frá Reykjavík og flaug meðfram ánni, að sögn Jóns. Leit heldur nú áfram. Stuðlagil hefur verið vinsæll viðkomustaður ferðamanna á Austurlandi undanfarin ár. Erlend ferðakona á fertugsaldri lést þegar hún féll í ána í október árið 2024. Þremur og hálfu ári áður komu nærstaddir konu sem féll í klettum við gilið til bjargar.
Björgunarsveitir Múlaþing Stuðlagil Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Sjá meira