Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. ágúst 2026 13:01 DiJonai Carrington lét til sín taka í leiknum gegn Golden State Valkyries, á ýmsan hátt. getty/Matthew Huang Körfuboltakonan DiJonai Carrington kom mikið við sögu í leik Chicago Sky og Golden State Valkyries. Hún braut tvisvar gróflega af sér og lét henda áhorfanda út úr húsi.
Í 4. leikhluta kvartaði Carrington við einn dómara leiksins undan áhorfanda sem sat alveg upp við völlinn. Honum var í kjölfarið vísað í burtu en hann sneri aftur í sæti sitt skömmu síðar þar sem kvörtun Carringtons var álitin tilefnislaus. Ekki liggur fyrir í hverju kvörtun Carrington fólst eða hvað áhorfandinn á að hafa sagt. Carrington hefur verið mikið í fréttum að undanförnu. Fyrr í vikunni var hún rekin af velli í leik gegn Indiana Fever fyrir að gróft brot á Sophie Cunningham. Eftir leikinn birti Carrington færslu á Instagram þar sem stóð einfaldlega: „FORRÉTTINDI HVÍTRA“. Seinna sagðist Carrington ekki hafa verið að gefa í skyn að brottrekstur hennar hefði haft eitthvað með húðlit hennar að gera. Carrington var áfram í vígahug í leiknum gegn Valkyries. Fyrst sló hún Ceciliu Zandalasini í augað og svo Tiffany Hayes í munninn. Carrington fékk hvorki óíþróttamannslega villu né tæknivillu fyrir brotin en hún náði sér hins vegar í tæknivillu fyrir mótmæli í 3. leikhluta. Valkyries vann leikinn gegn Sky, 91-71, en þetta var fimmti sigur liðsins í röð. Carrington skoraði þrjú stig í leiknum og tók þrjú fráköst. Hún hitti aðeins úr einu af níu skotum sínum og tapaði boltanum þrisvar.
WNBA Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Barcola í hóp á morgun Enski boltinn Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Fleiri fréttir Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Sjá meira