Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Samúel Karl Ólason skrifar 13. ágúst 2026 23:47 Donald Tusk segir að hinn meinti launmorðingi hafi verið ráðinn til verksins af yfirvöldum í Rússlandi. AP/Omar Havana Pólskir löggæslumenn handtóku á dögunum rússneskan mann sem sagður er hafa verið ráðinn af yfirvöldum í Rússlandi til að myrða bandarískan ríkisborgara. Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir þetta fyrsta málið af þessu tagi, þar sem Rússar hafi reynt að myrða bandarískan ríkisborgara í NATO-ríki.
Tusk segir að maðurinn hafi verið ráðinn af rússneskri leyniþjónustu og skipað að taka manninn, sem er einnig úkraínskur ríkisborgari, af lífi í Varsjá. Ráðabrugg þetta mun hafa verið stöðvað á síðustu stundu, samkvæmt frétt ríkisrekna miðilsins TVP World. Haft er eftir Tusk að yfirvöldum í Kreml hafi þótt þessi tiltekni maður óþægilegur og varar hann við því að Rússar muni áfram ógna fólki í Evrópu, telji þeir tilefni til. Yfirvöld í Póllandi og víðar í Evrópu hafa sakað Rússa um ætlanir um skemmdarverk, tölvuárásir og banatilræði frá því innrásin í Úkraínu hófst 2022. Rússneski maðurinn ku vera 29 ára gamall og fundust sönnunargögn í fórum hans sem eiga að ýta undir málflutninginn gegn honum. Hann hefur verið ákærður fyrir tilraun til morðs og úrskurðaður í þriggja mánaða gæsluvarðhald. Hann stendur frammi fyrir fimmtán ára fangelsisdómi. Stutt er síðan rússneskur skopmyndateiknari og gagnrýnandi Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, var skotinn til bana í Póllandi. Þá sagði Tusk að allt benti til þess að drápið væri pólitískt launmorð. Sjá einnig: Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Frá febrúar 2022 hafa Rússar ítrekað verið sakaðir um skemmdarverk og ýmis konar árásir í Evrópu. Nú síðast eru rússneskir útsendarar sagðir hafa reynt að sprengja upp flugvélar með sjálfsprengidrónum á flugvelli í Þýskalandi. Á undanförnum árum hefur fjöldi andófsmanna og andstæðinga Pútíns látið lífið, bæði innan og utan Rússlands. Fyrir sex árum skaut rússneskur útsendari fyrrverandi uppreisnarmann frá Téténíu til bana um hábjartan dag í almenningsgarði í Berlín. Morðingjanum var sleppt í umfangsmestu fangaskiptum á milli Rússlands og vestrænna ríkja frá því að kalda stríðinu lauk. Pútín tók fagnandi á móti honum við komuna til Rússlands. Þá eitruðu rússneskir útsendarar fyrir Alexander Litvinenko, rússneskum fyrrverandi leyniþjónustumanni, með geislavirku efni í London árið 2006. Þeim tókst að ráða Litvinenko bana. Rússnesku leyniþjónustumönnunum sem eitruðu fyrir Sergei Skripal, öðrum fyrrverandi njósnara, og dóttur hans í Salisbury á Englandi árið 2018 tókst aftur á móti ekki ætlunarverk sitt. Þeim tókst þó að drepa breska konu sem komst í snertingu við leifarnar af taugaeitrinu sem þeir beittu í tilræðinu og skildu eftir á víðavangi. Einnig er talið að rússnesk stjórnvöld hafi staðið fyrir því að eitrað var fyrir Alexí Navalní, leiðtoga rússnesku stjórnarandstöðunnar, árið 2020. Hann lést í rússnesku fangelsi árið 2024.
Pólland Rússland Bandaríkin Innrás Rússa í Úkraínu Tengdar fréttir Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Forsvarsmenn Sænsku öryggislögreglunnar Säpo segja að komið hafi verið í veg fyrir ráðabrugg rússneskra njósnara og útsendara þeirra úr sendiráði ónefnds Evrópuríkis. Markmið Rússanna mun hafa verið að hafa áhrif á stjórnmál í Svíþjóð og að kasta rýrð á ríkisstjórnina, Atlantshafsbandalagið og Evrópusambandið. 10. ágúst 2026 22:21 Fangelsaðir vegna íkveikju fyrir Wagner Hópur breskra manna hefur verið dæmdur fyrir að kveikja eld í vöruskemmu i Lundúnum fyrir Wagner-málaliðahópinn rússneska. Inn í vöruskemmunni var neyðaraðstoð og Starlink-sendibúnaður sem senda átti til Úkraínu. Þeir ætluðu einnig að ræna rússneskum manni sem hefur verið gagnrýninn á stjórnvöld í Rússlandi og kveikja í veitingastað hans. 24. október 2025 16:16 „Það vill enginn spila eftir reglum sem eru samdar annars staðar“ Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir heiminn vera að ganga í gegnum miklar og hraðar breytingar og hann sé þegar orðinn fjölpóla. Í ræðu sem hann hélt á ráðstefnu í Rússlandi í gær og ummælum í pallborðsummælum sagði Pútín meðal annars að ríki Evrópu væru mörg í stríði við Rússland en það væri fáránlegt að halda að Rússar myndu ráðast á önnur ríki. 3. október 2025 14:36 Dróna- og skuggastríð í Evrópu: Hvað gengur Rússum til og hvað getur NATO gert? Tilkynningum um rússneska dróna eða rússneskar herþotur inn í lofthelgi eða á loftvarnarsvæðum ríkja Atlantshafsbandalagsins hefur náð nýjum hæðum í þessum mánuði. Þetta hefur varpað ljósi á holur í vörnum NATO og í senn vakið spurningar um hvað ráðamönnum í Rússlandi standi til. 27. september 2025 16:01 Sviptu hulunni af skósveinum GRU sem sendu sprengjur í flugvélar Saksóknarar í Litháen segjast hafa svipt hulunni af hópi manna tengdum Rússlandi sem skipulagt hafi og framkvæmt íkveikjuárásir víðsvegar um Evrópu. Einhverjir mannanna hafa verið handteknir en þeir eru meðal annars grunaðir um að senda eldsprengjur um borð í flugvélar DHL á vegum Leyniþjónustu rússneska hersins (GRU). 18. september 2025 14:09 Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Yfirvöld í Noregi hafa komist að þeirri niðurstöðu að rússneskir tölvuþrjótar beri ábyrgð á árás á stíflu þar í landi í apríl. Yfirmaður norsku leyniþjónustunnar segir Rússland helstu ógnina sem steðji að Noregi en talsmaður utanríkisráðuneytis Rússlands gagnrýndi Norðmenn harðlega í dag fyrir meinta hervæðingu Svalbarða. 13. ágúst 2025 18:33 Rússar notuðu Brasilíu sem njósnaraverksmiðju Leyniþjónustur Rússlands höfðu um árabil notað Brasilíu sem einskonar verksmiðju fyrir njósnara. Þar tókst rússneskum njósnurum að skapa sér nýtt líf, skjöl til að styðja þennan tilbúna bakgrunn, stofna fyrirtæki, eignast vini og jafnvel maka. 22. maí 2025 23:23 Gera úkraínsk ungmenni að sjálfsmorðssprengjumönnum Útsendarar leyniþjónusta Rússlands hafa notað samfélagsmiðla til að fá unga Úkraínumenn til að gera sprengjuárásir í Úkraínu. Í einhverjum tilfellum hefur fólkið ekki vitað að það bæri sprengju og hefur þó óafvitandi verið gert að sjálfsmorðssprengjumönnum. 2. maí 2025 16:09 Ný sveit njósnara leiðir skuggastríð Rússa Skuggastríð Rússa gegn Vesturlöndum er leitt af nýju teymi njósnara hjá leyniþjónustu rússneska hersins (GRU). Þessi hópur er meðal annars talinn hafa sent eldsprengjur um borð í fragtflugvélar og reynt að ráða forstjóra stærsta hergagnaframleiðanda Evrópu af dögum, svo eitthvað sé nefnt. 15. febrúar 2025 13:06 Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Sjá meira
Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Forsvarsmenn Sænsku öryggislögreglunnar Säpo segja að komið hafi verið í veg fyrir ráðabrugg rússneskra njósnara og útsendara þeirra úr sendiráði ónefnds Evrópuríkis. Markmið Rússanna mun hafa verið að hafa áhrif á stjórnmál í Svíþjóð og að kasta rýrð á ríkisstjórnina, Atlantshafsbandalagið og Evrópusambandið. 10. ágúst 2026 22:21
Fangelsaðir vegna íkveikju fyrir Wagner Hópur breskra manna hefur verið dæmdur fyrir að kveikja eld í vöruskemmu i Lundúnum fyrir Wagner-málaliðahópinn rússneska. Inn í vöruskemmunni var neyðaraðstoð og Starlink-sendibúnaður sem senda átti til Úkraínu. Þeir ætluðu einnig að ræna rússneskum manni sem hefur verið gagnrýninn á stjórnvöld í Rússlandi og kveikja í veitingastað hans. 24. október 2025 16:16
„Það vill enginn spila eftir reglum sem eru samdar annars staðar“ Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir heiminn vera að ganga í gegnum miklar og hraðar breytingar og hann sé þegar orðinn fjölpóla. Í ræðu sem hann hélt á ráðstefnu í Rússlandi í gær og ummælum í pallborðsummælum sagði Pútín meðal annars að ríki Evrópu væru mörg í stríði við Rússland en það væri fáránlegt að halda að Rússar myndu ráðast á önnur ríki. 3. október 2025 14:36
Dróna- og skuggastríð í Evrópu: Hvað gengur Rússum til og hvað getur NATO gert? Tilkynningum um rússneska dróna eða rússneskar herþotur inn í lofthelgi eða á loftvarnarsvæðum ríkja Atlantshafsbandalagsins hefur náð nýjum hæðum í þessum mánuði. Þetta hefur varpað ljósi á holur í vörnum NATO og í senn vakið spurningar um hvað ráðamönnum í Rússlandi standi til. 27. september 2025 16:01
Sviptu hulunni af skósveinum GRU sem sendu sprengjur í flugvélar Saksóknarar í Litháen segjast hafa svipt hulunni af hópi manna tengdum Rússlandi sem skipulagt hafi og framkvæmt íkveikjuárásir víðsvegar um Evrópu. Einhverjir mannanna hafa verið handteknir en þeir eru meðal annars grunaðir um að senda eldsprengjur um borð í flugvélar DHL á vegum Leyniþjónustu rússneska hersins (GRU). 18. september 2025 14:09
Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Yfirvöld í Noregi hafa komist að þeirri niðurstöðu að rússneskir tölvuþrjótar beri ábyrgð á árás á stíflu þar í landi í apríl. Yfirmaður norsku leyniþjónustunnar segir Rússland helstu ógnina sem steðji að Noregi en talsmaður utanríkisráðuneytis Rússlands gagnrýndi Norðmenn harðlega í dag fyrir meinta hervæðingu Svalbarða. 13. ágúst 2025 18:33
Rússar notuðu Brasilíu sem njósnaraverksmiðju Leyniþjónustur Rússlands höfðu um árabil notað Brasilíu sem einskonar verksmiðju fyrir njósnara. Þar tókst rússneskum njósnurum að skapa sér nýtt líf, skjöl til að styðja þennan tilbúna bakgrunn, stofna fyrirtæki, eignast vini og jafnvel maka. 22. maí 2025 23:23
Gera úkraínsk ungmenni að sjálfsmorðssprengjumönnum Útsendarar leyniþjónusta Rússlands hafa notað samfélagsmiðla til að fá unga Úkraínumenn til að gera sprengjuárásir í Úkraínu. Í einhverjum tilfellum hefur fólkið ekki vitað að það bæri sprengju og hefur þó óafvitandi verið gert að sjálfsmorðssprengjumönnum. 2. maí 2025 16:09
Ný sveit njósnara leiðir skuggastríð Rússa Skuggastríð Rússa gegn Vesturlöndum er leitt af nýju teymi njósnara hjá leyniþjónustu rússneska hersins (GRU). Þessi hópur er meðal annars talinn hafa sent eldsprengjur um borð í fragtflugvélar og reynt að ráða forstjóra stærsta hergagnaframleiðanda Evrópu af dögum, svo eitthvað sé nefnt. 15. febrúar 2025 13:06