Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Samúel Karl Ólason skrifar 5. ágúst 2026 11:43 Flugvellinum Leipzig/Halle var lokað í gærkvöldi og hafa orðið tafir á honum í morgun eftir að sjálfsprengidróni fannst þar. Útlit er fyrir að flugvél hafi verið flogið á annan dróna. AP/Tobias Juhghanns, DPA Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Leipzig í Þýskalandi í gærkvöldi, við hlið úkraínskrar fraktflugvélar. Fjölmiðlar í Þýskalandi segja að sprengjusérfræðingar hafi staðfest að dróninn hafi borið sprengju en hann er sagður hafa verið gallaður.
Fjórar úkraínskar flugvélar á vegum fyrirtækisins Antonov voru nærri þar sem dróninn fannst, samkvæmt frétt Spiegel. Auk þess að umræddur dróni fannst á flugvellinum var flugvél frá DHL flogið á einhvern hlut skömmu eftir flugtak frá honum í gærkvöldi. Óljóst er hvort sá hlutur hafi verið sami dróninn eða annar. Þýski miðillinn Bild segir að varnarkerfi flugvallarins hafi greint tvo dróna í gærkvöldi. Þá segir miðillinn að yfirvöld telji að um árásartilraun sé að ræða. Rannsakendur Atlantshafsbandalagsins eru sagðir koma að málinu. A drone carrying an unknown substance and a detonator, suspected to be explosives, was discovered by staff parked immediately next to a Ukrainian Antonov transport aircraft at Leipzig/Halle airport in Germany pic.twitter.com/vhrW430xCk— Faytuks Network (@FaytuksNetwork) August 5, 2026 Umræddur flugvöllur er mikið notaður til fragtflugs og til hergagnaflutninga til Úkraínu. Árið 2024 kviknaði eldsprengja um borð í gámi á flugvellinum. Það er talið hafa verið ráðabrugg rússneskra útsendara, sem hafa verið sakaðir um skemmdarverk og jafnvel morðtilræði víða í Evrópu. Sjá einnig: Sviptu hulunni af skósveinum GRU sem sendu sprengjur í flugvélar Flugvellinum var lokað vegna drónanna í nótt og flugvélum beint annað. Þar á meðal eru farþegaflugvélar. Fjölmiðlar í Þýskalandi segja að dróninn sem fannst hafi verið greindur af sérfræðingum og hann hafi borið sprengju og hvellettu. Það mun hafa verið hvellettan sem bilaði, samkvæmt frétt DW. Upprunalega stóð til að granda drónanum með sprengju en hætt var við það.
Þýskaland Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira