Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Sigurgeir Þorkelsson skrifar 3. ágúst 2026 13:47 Jón Haukur gaf ekkert eftir hlaupinu upp Narfann. Skjáskot Á sjötta þúsund sótti um helgina Unglingalandsmót UMFÍ sem fram fór á Sauðárkróki í ár. Ný keppnisgrein í tröppuhlaupi vakti kátínu en keppt var í tuttugu greinum alls. Keppendur eru ellefu hundruð börn og ungmenni af landinu öllu.
Það var Haukur Skúli Óttarsson úr Eyjafjarðarsveit sem sigraði tröppuhlaupið. Honum var svo mikið í mun að bæta tíma föður síns upp á 26 sekúndur að hann kastaði sér yfir síðustu tröppurnar. Það nægði til en Haukur kláraði sprettinn á 21,73 sekúndum. Tröppurnar sem um ræðir eru upp á Nafirnar á Sauðárkróki. Þær eru 163 talsins. Lagt hefur verið til að tröppuhlaupið verði árlegur viðburður og verði kallað heimsmeistarakeppni í greininni. Ef af verður hlýtur Haukur að vera fyrsti heimsmeistarinn í tröppuhlaupi, segir Jón Aðalsteinn Bergsveinsson kynningarfulltrúi UMFÍ. Keppt er í nokkrum greinum í frjálsum íþróttum á mótinu. UMFÍ Haukur Skúli tók virkan þátt í mótinu og var skráður í margar greinar. Hann hafði til að mynda nýlokið keppni í 800 metra hlaupi þegar hann tók tröppuhlaupið. Dæmi er um að einn þátttakandi hafi skráð sig í 18 greinar. Meðal keppnisgreina eru kökuskreytingar, badminton, utanvegahjólreiðar og frjálsar grashandbolti. Mikil ánægja meðal skipuleggjenda „Þetta gekk afburðavel, það eru allir mjög glaðir og sáttir,“ segir Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri mótsins, sem hefur nú skipulagt sitt síðasta mót. Glæsileg kaka, og mjög í anda Ungmennahreyfingarinnar.UMFÍ „Það er gott fólk og gleði í andliti barna og ungmenna stendur upp úr,“ segir Ómar sáttur, eftir tuttugu ár á vaktinni. Annar hápunktur sé fólkið sem hann hafi fengið að vinna með um land allt. „Maður er búinn að kynnast þúsundum,“ segir Ómar. „Það er markmiðið hjá okkur, að gleðja alla og að allir fari sáttir.“ Mótið fór fram á Sauðárkróki í ár en það flakkar milli staða milli ára. UMFÍ Mótið flakkar milli landshluta og meðal mótsstaða síðustu ára eru Höfn, Egilsstaðir, Selfoss og Borgarnes. Eins og gefur að skilja er nokkur samkeppni um pláss yfir verslunarmannahelgina og því ýmsir staðir sem ekki koma til greina. Þá bendir Ómar á að mótið sé vímuefnalaus fjölskylduhátíð og blandist því illa við marga aðra viðburði verslunarmannahelgarinnar. Kökuskreytingakeppnin vakti mikla gleði og kátínu. UMFÍ „Veðurspáin var ekki góð fyrir viku síðan en það rættist úr öllu,“ segir Ómar, sem var að störfum við frágang þegar blaðamaður heyrði í honum. „Hér er sól í heiði og héðan fara allir með sól í hjarta,“ segir Ómar að lokum en mótinu lauk í gærkvöldi með tónleikum, brekkusöng og flugeldasýningu.
Skagafjörður Verslunarmannahelgin Íþróttir barna Mest lesið Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fleiri fréttir Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Sjá meira