Innherji

Hvað má launa­vísi­talan hækka hratt eigi að ná verð­bólgu niður í mark­mið?

Hörður Ægisson skrifar
Hafsteinn Hauksson, aðalhagfræðingur Kviku, kemst að þeirri niðurstöðu að verðbólgumarkmiðið kunni að þola „örari hækkun“ launavísitölunnar heldur en nálgun Seðlabankans gefur til kynna.
Hafsteinn Hauksson, aðalhagfræðingur Kviku, kemst að þeirri niðurstöðu að verðbólgumarkmiðið kunni að þola „örari hækkun“ launavísitölunnar heldur en nálgun Seðlabankans gefur til kynna. Kvika

Hækkunartaktur launavísitölunnar gæti verið á bilinu um 4,5 til 5,5 prósent á ári án þess að það kæmi í veg fyrir að verðbólgan myndi hjaðna í átt að markmiði, samkvæmt greiningu frá Kviku, nokkuð meira svigrúm en kemur fram í nýlegu mati Seðlabanka Íslands. Skýringin er meðal annars sögðu vera sú að launakostnaður getur vaxið hraðar en verð innlendrar neyslu, upp að því marki sem hagkerfið framleiðir vörur og þjónustu í öðrum hlutföllum en það neytir þeirra.


Tengdar fréttir

Vatna­skil gætu verið í kortunum og spá því að vaxta­hækkunum sé lokið í bili

Þótt verðbólgan verði að líkindum í kringum fimm prósent á næstu mánuðum þá gætu verið vatnaskil í kortunum samhliða hratt lækkandi hrávöruverði og skýrum vísbendingum um hægari efnahagsumsvif. Greinendur Acro telja því að vaxtahækkunarferlinu sé lokið, í bili að minnsta kosti, og segja „nauðsynlegt“ að innlenda hagkerfið fái aukið súrefni á komandi misserum.

Vextir hækkaðir sam­hliða horfum á minni hag­vexti og meira at­vinnu­leysi

Annan fundinn í röð hefur peningastefnunefnd ákveðið að hækka meginvexti Seðlabankans um 25 punkta, sem var í samræmi við spár flestra greinenda, á sama tíma og ný þjóðhagsspá teiknar upp dekkri efnahagshorfur sem einkennast af minni hagvexti og meira atvinnuleysi. Nefndin segist reiðubúin að herða taumhald peningastefnunnar frekar en ekki er útlit fyrir að verðbólgan fari undir fjögur prósent fyrr en á seinni hluta næsta árs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×