Sagði nei við Love Island og vann svo silfur á Samveldisleikunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. ágúst 2026 09:02 Katie Shanahan segist vera mesti Love Island-aðdáandi í heimi en vildi þó ekki fórna sundinu fyrir veru í þáttunum. @_katieshanahan_ Ef hún hefði sagt já þá hefði sundkonan Katie Shanahan kannski verið að leita að ástinni í uppáhaldssjónvarpsþættinum sínum en hún tók þess í stað ákvörðun sem skilaði henni að lokum silfurverðlaunum á Samveldisleikunum.
Hin 22 ára gamla Shanahan sagði í samtali við BBC Scotland News að henni hefði verið boðið að koma fram í Love Island á síðasta ári, raunveruleikaþættinum þar sem einhleypingum er komið fyrir í glæsivillu á Spáni. Shanahan, sem er fædd í Glasgow, hafnaði hins vegar boðinu um sólskin á Majorku og kaus þess í stað að einbeita sér að íþrótt sinni. Hún vann silfur í 200 metra baksundi á Samveldisleikunum á dögunum. View this post on Instagram A post shared by Canada's Olympic Network (@cbcolympics) „Ég er mesti Love Island-aðdáandi í heimi, ég hef horft á allar seríurnar,“ sagði hún og hló. „Í fyrra spurðu framleiðendurnir mig og Abbie Wood [ensk sundkona] hvort við hefðum áhuga á að vera með. Ég gat samt ekki farið, því ég þurfti að einbeita mér að sundinu, en hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér? Þetta freistaði mín svolítið en sundið varð að ganga fyrir,“ sagði Shanahan. Ákvörðun Shanahan skilaði hins vegar árangri í lauginni og sást hún berjast við tárin eftir að hafa tryggt sér silfrið. Eftir að hafa fengið innblástur frá því að sjá Hannah Miley keppa á leikunum 2014 sagði Shanahan að hún vonaði að komandi kynslóðir gætu fengið svipaðan innblástur við að horfa á hana í lauginni að þessu sinni. „Ég hef alltaf sagt að ef ég get veitt næstu kynslóð íþróttamanna innblástur, þá hef ég náð mínu markmiði,“ útskýrði hún. View this post on Instagram A post shared by BBC Scotland News (@bbcscotnews) „Ég veit að eftir 2014, þegar ég horfði á Hannah, fann ég fyrir innblæstri og það væri gaman að hugsa til þess að kannski eru einhverjar yngri stelpur að horfa á 200 metra baksundið í þetta sinn og kannski byrja þær í sundi út af því,“ sagði Shanahan. Hún grínaðist með að aðalvandamálið síðastliðinn föstudag hefði verið að finna tíma til að svara öllum vinum og velunnurum sem sendu henni skilaboð til að óska henni til hamingju. „Ég er svo þakklát fyrir stuðninginn og þar sem þetta eru leikar á heimavelli finnst mér eins og stuðningurinn hafi aukist enn meira, sem er svo gaman að upplifa,“ sagði Shanahan. View this post on Instagram A post shared by Katie Shanahan (@_katieshanahan_)
Sund Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Íslenski boltinn Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Enski boltinn Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Enski boltinn „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Fleiri fréttir „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit Fram á toppinn og flautumark á Selfossi FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Haukur leiddi endurkomu Löwen Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Hrútarnir frá Hollywood eiga að fara alla leið Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Nýja brautin í Madrid toppi Mónakó Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Öll pressan er á Ólafi Inga „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Besta frjálsíþróttafólk heims mætist í nýju móti Yfir hundrað þúsund áhorfendur mættu á NFL-leik í Ástralíu ÍBV samdi við bandarískan hermann Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sjá meira