Ætlar að áfrýja dómnum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Agnar Már Másson skrifa 28. júlí 2026 13:41 Ming Ting mætti með tvo stóra poka í dómsal í dag. Vísir/Lýður Valberg Ming Ting Mancel ætlar að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdi hana í tólf ára fangelsi. Hún var ákærð fyrir manndráp og brot í nánu sambandi.
Hvernig blasir þessi niðurstaða við þér? „Hún er vonbrigði, þetta er þyngri dómur en hún átti von á og hún hefur tekið ákvörðun nú þegar að fela mér það að áfrýja málinu,“ segir Ómar Örn Bjarnþórsson, verjandi Ming Ting Mancel, við Agnar Már Másson, fréttamann Sýnar. Hann segir að í ljósi sögunnar sé tólf ára dómur fyrir manndráp nokkuð vægur dómur. Ming Ting var sakfelld fyrir að hafa, ásamt eiginmanni sínum, orðið 29 ára gamallri dóttur þeirra að bana á hótelherbergi á Edition-hótelinu í Reykjavík. „Nú veit ég ekki hverjar forsendur niðurstöðurnar eru, hvort hún sé sakfelld fyrir samverknað eða hlutdeild,“ segir Ómar sem átti enn eftir að lesa dóminn. „Niðurstaðan er sú að hún sættir sig ekki við tólf ára fangelsisdóm og þess vegna ætlar hún að áfrýja.“ Farbann Ming Ting rann úr gildi þegar dómurinn var kveðinn og er Ming Ting því frjáls. Hún dvaldi fyrst um sinn í tvo og hálfan mánuð í gæsluvarðhaldi, sem dregið er frá dómnum, en síðar meira í farbanni fram að dómsuppkvaðningunni. „Hún er ekki í gæsluvarðhaldi og ekki í farbanni en í ljósi niðurstöðu dómsins kæmi það mér ekki á óvart ef ég fengi senda kröfu um gæsluvarðhald á meðan áfrýjunarfresti stendur,“ segir hann.
Manndráp á Reykjavík Edition Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira