Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Jakob Bjarnar skrifar 22. júlí 2026 14:23 Gunnar Salvarsson segir hitabylgjuna í Evrópu bjóða upp á möguleika í ferðaþjónustu; fólk gæti viljað koma til Íslands í kælingu. vísir/Anton Brink/Facebook Gunnar Salvarsson fyrrverandi fjölmiðlamaður ritar grein á Vísi þar sem hann vekur athygli á því að hugsanlega gæti hið svala íslenska sumar reynst verðmæt auðlind. „
Nýkominn heim úr hitasvækju á Ítalíu fann ég fyrir óvæntum létti þegar ég gat andað að mér íslenskum svala, tíu gráðum og fundið lárétta kalda regndropa í andlitinu. Það var beinlínis sælutilfinning. Ætti ég þess kost að velja á milli þess að vera regnbarinn á Íslandi eða sólþurrkaður á háhitasvæðum í Evrópu eða annars staðar væri valið auðvelt,“ segir Gunnar í nýrri grein. Gunnar segir þau hjón hafa um árabil farið til Ítalínu en þær ferðir verða nú ekki fleiri. Hitabylgjur hafa gengiÍtalíustóran hluta Evrópu undanfarin sumur og hitinn víða farið upp undir eða yfir fjörutíu gráður. Hann segir að í áratugi hafi Íslendingar flúið rokið, rigninguna og tíu stiga hitann og greitt stórfé fyrir sól og hlýindi. En hvað gerist ef hitinn verður of mikill? „Íslenska sumarið, sem við höfum sjálf lengi bölsótast yfir, gæti skyndilega orðið eftirsóknarvert. Tólf til fimmtán stiga hiti, gola eða smá nepja, bjartar sumarnætur og víðerni gætu reynst mörgum hið fullkomna kælifrí,“ skrifar Gunnar. Hann telur vert að þeir sem þiggi laun fyrir að auglýsa Ísland sem áfangastað ættu að gefa þessu gaum, einmitt nú þegar landsmenn á suðvesturhorninu blóta veðráttunni í sand og ösku. „Íslensk stjórnvöld hafa mótað ferðamálastefnu til ársins 2030. Þar er rætt um sjálfbærni, dreifingu ferðamanna um landið, verndun náttúrunnar og auknar tekjur af hverjum ferðamanni. En erum við með áætlun um hvað gera skuli ef ferðamönnum fjölgar skyndilega um eina, tvær eða jafnvel þrjár milljónir?“ Stærsta spurningin að mati Gunnars er ekki sú hvernig við takmörkum fjölda ferðamanna heldur hvort við séum undir það búin að grípa til slíkra ráða ef aðsóknin fer úr böndunum.
Veður Ferðaþjónusta Auglýsinga- og markaðsmál Ítalía Ferðalög Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Sjá meira