Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar 16. júlí 2026 18:03 Þegar ég renndi yfir Vísi fyrir skömmu rak ég augun í fyrirsögn: „Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi.“ Fyrir ofan hana blasti við mynd af Sigurði Inga Jóhannssyni. Fyrsta hugsun mín var að þarna væri á ferðinni löngu tímabær sjálfsskoðun og hélt satt best að segja að fréttin fjallaði um manninn sjálfan. Svo las ég áfram og komst að því að Sigurður Ingi var ekki að lýsa sjálfum sér heldur mér. En það breytir því ekki að ég þekki fáa, ef nokkurn, sem eiga heitið „frekjukall“ jafn vel skilið og hann. Sá sem hér heldur á penna fékk nefnilega að kynnast þeirri frekju af eigin raun. Á sínum tíma starfaði ég hjá Bændasamtökum Íslands. Þá vildi þannig til að tilteknum ráðherra líkaði ekki hvernig ég leyfði mér að hugsa og skrifa um þjóðmálin og þótti honum víst best fara á því að ég væri þar ekki mikið lengur við störf. Ég ætla að láta það liggja á milli hluta hvernig sú viðleitni var borin fram. Þetta reyndist ekki í síðasta sinn sem starfsfólk Bændasamtakanna varð fyrir barðinu á honum. Á samkomu tengdri Búnaðarþingi, þar sem framkvæmdastjóri samtakanna Vigdís Häsler var gestgjafi hans, sá hann ástæðu til þess þegar taka átti hópmynd, að vísa til hennar eftir húðlit í niðrandi tón. Það er sérstök tegund af frekju að telja sig geta gert lítið úr gestgjafa sínum og láta manneskju finna fyrir því frammi fyrir öðrum að hún líti öðruvísi út. Og það segir sína sögu að afsökunarbeiðnin, sem var „innileg“ að hans sögn, lét ekki sjá sig fyrr en málið var komið í fréttir. Frekjan á sér sem sagt sögu og hún er hvorki stutt né falleg. Og talandi um að láta ekki frekjukalla vaða uppi. Hvað gerði Sigurður Ingi sjálfur þegar hann var fjármálaráðherra? Hann settist niður og sendi lögreglunni sérstakt erindi vegna netsölu á áfengi. Í reynd var bréfið hvatning til hennar um að láta til sín taka gagnvart tilteknum rekstri. Hér er rétt að staldra við því þetta er ekkert smáræði. Fjármálaráðherra heldur á veskinu sem heldur lögreglunni gangandi. Þegar sá hinn sami sest niður og skrifar lögreglunni bréf til að ýta á eftir aðgerðum í máli sem er til rannsóknar þá er hann ekki að standa vörð um lög og reglu heldur er hann að reyna að hafa áhrif á sakamálarannsókn. Það er gróft brot á þrískiptingu ríkisvaldsins og það var ekki að ástæðulausu sem dómsmálaráðuneytið sá sig knúið til að árétta að sakamál eigi aldrei að lúta pólitískum afskiptum. Það þarf töluverða ósvífni til að beita valdi sínu sem ráðherra og lögreglu ríkisins gegn verslun í samkeppni. Nýjasta útspil Sigurðar segir svo sömu söguna. Í síðasta mánuði lokaði ríkiseinkasalan vínbúðinni á Fáskrúðsfirði og við opnuðum afgreiðslu á staðnum að beiðni heimafólks. Sigurður vill taka þjónustuna af íbúum Fáskrúðsfjarðar og um leið tekjurnar af verslun staðarins. Hann stendur dyggan vörð um úrelta einokunarverslun sem hefur yfirgefið fólkið á Fáskrúðsfirði. En fólkið sjálft, þeir sem eiga að njóta þjónustunnar, virðast koma honum harla lítið við. Þetta er svo sem í takt við söguna. Framsóknarflokkurinn hefur í gegnum tíðina verið þekktari fyrir afturför en framsókn þrátt fyrir nafnið. Sjaldan hefur flokkurinn staðið fyrir annað en að halda dauðahaldi í gömul og úrelt gildi. Þó hefur hann löngum reynt að halda því fram að hann gæti hagsmuna landsbyggðarinnar en Fáskrúðsfjarðarmálið afhjúpar að honum er ekki einu sinni umhugað um það lengur. Það er ekki að ástæðulausu sem fylgi framsóknarflokksins hefur þróast eins og raun ber vitni. Þetta gerist þegar stjórnmálaflokkur gleymir fyrir hverja hann á að vinna. Höfundur er vínsali. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Áfengi Netverslun með áfengi Framsóknarflokkurinn Elías Blöndal Guðjónsson Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar