Klóraði lögreglumann og beit annan Árni Sæberg skrifar 16. júlí 2026 11:37 Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í málinu. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur verið dæmdur til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að klóra lögreglumann og bíta annan fyrir framan verslun í Kópavogi árið 2024.
Í dómi yfir manninum, sem kveðinn var upp þann 31. mars en birtur í dag, segir að hann hafi verið ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa að kvöldi í október 2024, á bílastæði fyrir framan verslun í Kópavogi, klórað lögreglumann á hægri framhandlegg og bitið annan lögreglumannn í hægri hönd, þar sem lögreglumennirnir voru við skyldustörf. Maðurinn hafi mætt fyrir dóminn og játað brot sín skýlaust og því hafi málið verið dómtekið án frekari sönnunarfærslu. Við ákvörðun refsingar hafi verið litið til sakarferils mannsins, en hann hafi einu sinni gengist undir sektargerð vegna aksturs undir áhrifum, aksturs án gildra ökuréttinda og fíkniefnalagabrots. Brotið árið 2024 hafi verið framið fyrir sektargerðina og því sé honum dæmdur hegningarauki vegna þess brots. Honum til málsbóta horfi skýlaus játning hans. Fyrir dómi hafi af hálfu hans verið lýst að hann hafi verið [afmáð] og að hann iðrist mjög gjörða sinna. Á hinn bóginn sé óhjákvæmilegt að horfa til þess að brot hans hafi beinst gegn lögreglumönnum við skyldustörf og beri að líta það alvarlegum augum. Með vísan til þess sé refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í tvo mánuði en fullnustu hennar skuli frestað og hún falli niður að tveimur árum liðnum, haldi hann almennt skilorð. Loks greiði hann allan sakarkostnað, 100 þúsund krónur.
Dómsmál Lögreglumál Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira