„Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 10. júlí 2026 14:04 Egilsstaðir Spáð er allt að tuttugu og sex gráðum og bjartviðri á Austurlandi um helgina og landinn virðist streyma þangað í von um nokkra sólardaga. Fáir flugmiðar eru óseldir frá Reykjavíkurflugvelli til Egilsstaða um helgina og tjaldsvæðin fyrir austan eru að fyllast.
Íslendingar streyma nú austur að sögn Elís Þórs Vídó, en hann situr í stjórn Þjónustusamfélagsins á Héraði og var til viðtals í Bítinu í morgun. Hann hafi séð Íslendingana koma „með hjólhýsin og skuldahalana“ en hins vegar hafi erlendir ferðamenn stefnt í gagnstæða átt, norður. „Við tökum glöð á móti öllum gestum, enda mikið hægt að gera hérna á Egilsstöðum,“ segir Elí. Spáin fyrir Austfirði á morgun klukkan fjögur.Veðurstofa Íslands Umferðin austur hafi byrjað fyrr í vikunni og tjaldsvæðið á Egilsstöðum sé þegar fullt. Tjaldsvæðið í Hallormsstaðarskógi sé „orðið vel þétt“ og hann hafi sjálfur fengið fyrirspurnir frá ferðalöngum um hvort þeir megi leggja húsbílum á túninu heima hjá honum. Aðsóknin sé slík. Samkvæmt vef tjaldsvæðisins á Egilsstöðum er allt uppbókað eða frátekið þar fyrir dagana 10. - 12. júlí. Þétt virðist ætla að verða á tjaldsvæðinu á Egilsstöðum um helgina. reisa.is/camp egilsstaðir Þó svo að tjaldsvæðið á Egilsstöðum sé fullbókað séu önnur tjaldsvæði í nærliggjandi sveitarfélögum sem geti boðið sólarþyrstum ferðamönnum upp á næturstað. Heimamenn hafi búið sig undir ferðamannastrauminn en þegar hafi verið hugað að því að fylla vel á hillur verslana. „Það er búið að leggja mikla áherslu þegar þessi langtímaspá kom að við skulum nú vera tilbúin, skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið,“ segir hann. Uppselt eða fáir miðar eru eftir í flug frá Reykjavíkurflugvelli til Egilsstaða ef síða Icelandair er skoðuð. Uppselt er í flug til Egilsstaða frá Reykjavíkurflugvelli í dag og virðast fáir miðar vera eftir í flug á morgun samkvæmt vef Icelandair.Icelandair Lágmark viku í að skoða Austurland Elí segir ferðamenn þurfa að lágmarki viku til þess að skoða það sem Austurland hefur upp á að bjóða. „Þú getur verið í tvær, þrjár vikur hérna og bara upplifað brotabrot af fjórðungnum Austurlands í heild sinni.“ Hallormsstaðir sé mögnuð upplifun og verðugt sé að fara á útsýnispallinn í Hafnarhólma og skoða einn stærsta lundahól á Íslandi á Borgarfirði eystra. Eins sé mikið að hægt að gera og skoða á Egilsstöðum, „hvort sem það sé að fara og njóta náttúrunnar eða fara og fá sér gott í gogginn.“ Væri hann að koma af suðvesturhorninu austur hæfi hann ferðina á að fá sér ís, en fyrsta lúgusjoppa Egilsstaða opnaði fyrir stuttu.
Bítið Múlaþing Veður Bylgjan Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Sjá meira