Innlent

Eldur í Bryggju­hverfi

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Fimm slökkviliðsbílar eru á vettvangi að sögn sjónarvotts.
Fimm slökkviliðsbílar eru á vettvangi að sögn sjónarvotts. Valur Páll

Eldur kviknaði í þaki fjölbýlishúss við Naustabryggju í Reykjavík um klukkan hálf ellefu í morgun. Allt tiltækt lið slökkviliðs var sent á vettvang. Engin slys urðu á fólki. 

Unnið var að þakinu þegar eldurinn kviknaði en iðnaðarmenn hafi unnið að því að bræða pappa á þakinu. Eldurinn hafi komist í timbur þaksins og farið upp eftir öllu bárujárni þess að sögn Lárusar Petersen varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. 

Lárus segir eldinn erfiðan og mannfrekan. Rífa þurfi bárujárnið af þakinu til þess að tryggja að engin glóð verði eftir undir þakplötunni. Slökkvilið gerir ráð fyrir viðveru sinni í minnst hálftíma í viðbót til þess. 

Engin slys hafi orðið á fólki og allir íbúar efstu hæðar hússins verið komnir út þegar slökkvilið bar að garði. Töluvert vatnstjón hafi orðið á einni íbúð hússins vegna slökkvistarfsins. 

Aðalatriði hafi verið að rífa mæni þaksins þannig að hægt væri að sprauta vatni hvoru megin við mæninn þar sem eldur kom upp. Lögregla hafi notað dróna til þess að nema hvar mesti hiti hafi verið og aðstoðað við slökkvistarf.

Vísir/Ívar

Að sögn sjónarvotts eru fimm slökkviliðsbílar á staðnum auk kranabíls. Einnig séu tveir sjúkrabílar á vettvangi. Eldurinn hafi kviknað í fjögurra hæða fjölbýlishúsi en nokkrir slökkviliðsmenn reyni nú að ráða niðurlögum eldsins á þaki þess.

Vísir/Ívar

Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×