Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. júlí 2026 16:01 Þjóðhátíðargestir geta fylgst með dagskránni og sótt ýmsar hagnýtar upplýsingar í Dalnum. Aðsend/Vísir/Vilhelm Þjóðhátíðargestir geta nú sótt Dalinn, nýtt smáforrit sem verður miðpunktur upplýsinga og þjónustu fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Þar er öll dagskrá hátíðarinnar aðgengileg, gestir geta skipulagt sig með því að smíða sína eigin hátíðardagskrá og fá tilkynningar tíu mínútum áður en atriði hefjast.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þjóðhátíðarnefnd en þar segir að forritið sé aðgengilegt bæði í App Store og Google Play og verði uppfært reglulega eftir því sem nær dregur hátíðinni. Markmiðið með Dalnum er að gera upplifun gesta enn betri með því að safna öllum helstu upplýsingum um Þjóðhátíð á einn stað hvort sem um er að ræða dagskrá, tilkynningar, samgöngur eða þjónustu. „Við viljum gera það eins einfalt og hægt er fyrir gesti að njóta Þjóðhátíðar. Með Dalnum eru allar helstu upplýsingar á einum stað og gestir geta skipulagt sína eigin hátíð, fengið áminningar um dagskrárliði og fylgst með nýjum upplýsingum eftir því sem nær dregur. Þetta er þjónusta sem við teljum að muni bæta upplifun gesta til muna,“ segir Jónas Guðbjörn, formaður Þjóðhátíðarnefndar. Eftir því sem nær líður að hátíðinni munu fleiri gagnlegir eiginleikar bætast í forritið. Þar á meðal verður hægt að fylgjast með staðsetningu strætisvagna í rauntíma og sjá hvenær næsti vagn er væntanlegur til og frá Herjólfsdal. Einnig verða upplýsingar um fyrirtæki og þjónustu í Vestmannaeyjum, opnunartímar, staðsetningar á korti og ýmsar aðrar hagnýtar upplýsingar. Þá verður hægt að hlusta á öll Þjóðhátíðarlögin til þessa í forritinu.
Þjóðhátíð í Eyjum Vestmannaeyjar Tónleikar á Íslandi Tengdar fréttir „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Framkvæmdastjóri Herjólfs segir ekki hafa áhyggjur af samgöngum fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þó enn verði tafir á viðgerð Herjólfs. Þá gangi vel að koma fólki frá Eyjum eftir Orkumótið sem fram fór þar um helgina þrátt fyrir að fella hafi þurft niður ferðir með Baldri. 28. júní 2026 14:31 Ágúst tekur við brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Eyjum Tónlistarmaðurinn Ágúst Þór Brynjarsson mun sjá um brekkusönginn á Þjóðhátíð í Eyjum í sumar. Hann tekur við af Magnúsi Kjartani sem stýrði söngnum undanfarin ár. 27. mars 2026 11:45 Mest lesið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Lífið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Fleiri fréttir Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete Sjá meira
„Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Framkvæmdastjóri Herjólfs segir ekki hafa áhyggjur af samgöngum fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þó enn verði tafir á viðgerð Herjólfs. Þá gangi vel að koma fólki frá Eyjum eftir Orkumótið sem fram fór þar um helgina þrátt fyrir að fella hafi þurft niður ferðir með Baldri. 28. júní 2026 14:31
Ágúst tekur við brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Eyjum Tónlistarmaðurinn Ágúst Þór Brynjarsson mun sjá um brekkusönginn á Þjóðhátíð í Eyjum í sumar. Hann tekur við af Magnúsi Kjartani sem stýrði söngnum undanfarin ár. 27. mars 2026 11:45