Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G Sigurgeir Þorkelsson skrifar 8. júlí 2026 07:33 Berglind Harpa Svavarsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi, er formaður byggðaráðs. Sjálfstæðisflokkurinn Byggðaráð Múlaþings lýsir þungum áhyggjum af skerðingu fjarskipta í sveitarfélaginu í kjölfar þess að slökkt var á 2G og 3G sendum. Sveitarfélagið er sérlega víðfeðmt og teygir sig frá Borgarfirði eystri suður á Djúpavog.
Fyrir það höfðu heimastjórnir á Fljótsdalshéraði og Djúpavogi ályktað undir lok síðasta mánaðar að fela skyldi sveitarstjórn Múlaþings að krefjast úrbóta í fjarskiptamálum í sveitarfélaginu. Múlaþing varð til við sameiningu fjögurra sveitarfélaga og hélt hvert þeirra ákveðinni stjórn yfir eigin málum með myndun svokallaðra heimastjórna í hverju hinna gömlu sveitarfélaga fyrir sig. Byggðaráð furðar sig á að Fjarskiptastofa hafi heimilað útfösun 2G og 3G-kerfa. Múlaþing sé dreifbýlt og mótist af fjallvegum, fjörðum, hálendi og fjölsóttum ferðamannastöðum. Örugg fjarskipti séu grundvallarþáttur almannaöryggis. Ráðið fullyrðir að Ísland sé fyrsta ríkið í Evrópu sem slökkvi á þessum kerfum áður en tryggt hafði verið að nýrri kerfi tækju við, sem skapi óviðunandi hættuástand fyrir íbúa og ferðamenn. Krafist er þess að ráðist verði tafarlaust í úrbætur þar sem þjónustan standist ekki kröfur um örugg fjarskipti. Þá er farið fram á að gert verði áhættumat á áhrifum skertrar fjarskiptaþjónustu á öryggi íbúa, ferðamanna og viðbragðsaðila. Bent er á að markmið laga um fjarskipti sé að tryggja örugg, hagkvæm og skilvirk fjarskipti um land allt og er sveitarstjóra, Dagmar Ýr Stefánsdóttur, falið að koma bókuninni á framfæri við innviðaráðuneytið og Fjarskiptastofu.
Múlaþing Fjarskipti Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vučić játar ósigur Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira