Meira afl fyrir orkuna Gunnar Guðni Tómasson skrifar 1. júlí 2026 07:01 Líkur eru á að raforkuþörf samfélagsins verði ekki uppfyllt á allra næstu árum. Þetta eru ekki ný sannindi, þau hafa endurspeglast í umræðum um orkuöryggi og í spám Orkustofnunar og Landsnets. Illa hefur gengið að koma verkefnum tengdum aukinni raforkuvinnslu í gegnum flókið leyfisveitinga- og kæruferli en nú hillir loks undir breytingar. Framkvæmdir við byggingu Vaðölduvers eru í fullum gangi og bygging Hvammsvirkjunar kemst vonandi á fullan skrið á allra næstu mánuðum. Það gleymist hins vegar stundum að ekki er nóg að afla orku inn í raforkukerfið heldur þarf einnig að setja upp nægilegt stýranlegt afl til að mæta þörf fyrir sveigjanleika. Næg orka er eitt, nægt afl annað. Ég hef áður líkt þessu við rútu sem ekur eftir þjóðveginum. Hún er með nægilegt bensín, þ.e. orku, en ekki nægilega öfluga vél til að komast upp allar brekkur. Aflið skortir til að nýta orkuna. Ítrekað hefur reynt á aflgetu raforkukerfisins undanfarin ár. Raforkuspár Landsnets benda einnig til að aflskortur geti orðið viðvarandi í raforkukerfinu í nánustu framtíð enda fer þörf fyrir sveigjanleika vaxandi vegna m.a. orkuskipta og innkomu vindorkuvera. Rekstur vindorkuvera kallar á stýranlegt afl á móti vindorkunni til að tryggja afhendingu orku frá slíkum orkuverum. Aflþörf og hagkvæmni Oft er nefnt að orkufyrirtæki þjóðarinnar, Landsvirkjun, ráði yfir nær öllu stýranlegu afli í landinu og jafnvel gefið í skyn að fyrirtækið hafi þar einhvers konar einokunaraðstöðu. Það er vissulega rétt að Landsvirkjun rekur langstærsta vatnsaflskerfi landsins og hefur með fyrirhyggju sett upp afl umfram lágmarksþarfir. Það afl nýtist sem stýranlegt afl í kerfinu. Aðrir framleiðendur hafa kosið að setja ekki upp afl umfram lágmarksþarfir að sama marki, enda fylgir slíkum fjárfestingum talsverður kostnaður. Þetta á bæði við um önnur orkufyrirtæki sem reka vatnsaflsstöðvar sem og fyrirtæki sem reka jarðvarmastöðvar. Þó ber að hafa í huga að vinnslukerfi Landsvirkjunar hefur ávallt verið hannað með ítrustu hagkvæmni að leiðarljósi enda er nýting vatnsafls Landsvirkjunar með því allra besta sem þekkist í heiminum. Laust stýranlegt afl í vinnslukerfi Landsvirkjunar er því takmarkaðra en margur hyggur. En í hverju liggja þessar takmarkanir? Auðvelt er að draga úr orkuvinnslu annarra virkjana þegar vindurinn blæs. Það má þó ekki ganga svo langt að vatn, sem annars hefði nýst til raforkuframleiðslu, fari að renna fram hjá vatnsaflsvirkjunum. Erfiðara er hins vegar að auka orkuvinnslu annarra virkjana þegar vindorkan skilar ekki orku. Til þess þurfum við að hafa tiltækar aflvélar (túrbínur) sem annars eru ekki í notkun. Það liggur í augum uppi að fjárfesting í aflvélum sem sjaldan eru notaðar er ekki endilega hagkvæm. Það er líklega ástæðan fyrir að önnur orkufyrirtæki hafa hannað sínar virkjanir þannig að aflvélar þeirra keyri nær stöðugt frekar en að vera tiltækar á þeim tímabilum þegar auka þarf afl í kerfinu, t.d. þegar vindurinn blæs ekki. Enn meiri aflaukning líkleg Til þess að mæta þörfum raforkumarkaðar fyrir aukinn sveigjanleika vinnur Landsvirkjun nú að undirbúningi þess að auka stýranlegt afl í vinnslukerfi sínu og jafnframt stækka eldri aflstöðvar. Þessi vegferð tekur ár og jafnvel áratugi enda ekki áhlaupaverk að stækka virkjanir í mikið nýttu og nánast fullseldu vinnslukerfi. Uppsetningu á auknu stýranlegu afli fylgja auk þess talsverðar fjárfestingar og verð fyrir stýranlegt afl á raforkumarkaði þarf að endurspegla þann kostnað enda verður ekki ráðist í slík verkefni nema að arðsemi þeirra sé tryggð. Bygging Búrfellsstöðvar II, sem gangsett var á árinu 2018 og býr að 100 MW afli, mætti tímabundið þörfinni fyrir aukið stýranlegt afl í raforkukerfinu. Stækkun Sigöldustöðvar um 65 MW er næsta stóra verkefni Landsvirkjunar í þessari vegferð. Eftir langt og strangt leyfisveitinga- og kæruferli hillir nú loks undir að framkvæmdir við stækkunina hefjist. Gert er ráð fyrir að hún verði komin í gagnið í lok árs 2029. Líklegt er að fleiri verkefni fylgi í kjölfarið en ákvarðanir um þau ráðast af aðstæðum á raforkumarkaði og spám um þörf fyrir sveigjanleika. Höfundur er framkvæmdastjóri Vatnsafls hjá Landsvirkjun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Guðni Tómasson Landsvirkjun Orkumál Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar