Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Agnar Már Másson skrifar 26. júní 2026 15:47 Meðan farþegar Eldingar fylgdust með Hnúfubak synda í Faxaflóanum birtist hvalveiðiskip með langreyði í eftirdragi. Sigrún Farþegum og leiðsögumönnum um borð í hvalaskoðunarskipi Eldingar varð hverft við þegar við þeim blasti dauð langreyður í eftirdragi hvalveiðiskips í Faxaflóa í gær. Leiðsögumaður segi suma farþega hafa orðið skelfingu lostna. Framkvæmdastjóri Eldingar segir að lifandi hvalir séu einnig auðlind og hvalaskoðun líka vertíð. „
Við vorum einmitt að horfa á hnúfubak sem var að synda mjög rólega í kringum okkur og svo kom [skipið] Hvalur, annað hvort 8 eða 9, með eina langreyði í eftirdragi,“ segir Sigrún Helgadóttir, hvalaleiðsögumaður hjá Eldingu, í samtali við Vísi. Hún segir að farþegar um borð í tveimur bátum hafi orðið varir við það þegar hvalshræið var dregið í gegnum Faxaflóa. „Þetta var bara sjón sem enginn vill sjá á hvalskoðunarbát,“ heldur Sigríður áfram. Hún segir að farþegar hafi verið verulega hissa og margir ekki gert sér grein fyrir því að hvalveiðar væru enn stundaðar á Íslandi. „Fólk var auðvitað í pínu sjokki við að heyra að svona væri enn að gerast og sjá þá sigla um á hvalaskoðunarsvæðinu þar sem við vorum að skoða hnúfubaka og hrefnur,“ segir hvalaleiðsögumaðurinn. „Það voru nokkrir sem áttu ekki til orð,“ bætir hún svo við. Viðbrögðin hafi verið blendin og sumir hafi verið skelfingu lostnir. Þetta er í fyrsta sinn sem Sigrún verður vitni að slíku en hún segist þó hafa heyrt af svipuðu atviki fyrir nokkrum árum. „Okkur finnst þetta auðvitað barn síns tíma og aldrei eitthvað sem einhver vill sjá. Og við vonum að aðrir farþegar og leiðsögumenn þurfi ekki að sjá neitt svona aftur. Af því að þetta er erfitt fyrir alla, bæði farþega og leiðsögumennina.“ Að þessu loknu hafi farþegar aftur á móti náð að sjá hnúfubaka leika sér. „Það lífgaði aðeins upp á andrúmsloftið.“ Auk þessa stakk Rannveig Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Eldingar, niður penna í skoðanadálk Vísis vegna málsins. Þar sagði hún að lifandi hvalir væru einnig auðlind og að hvalaskoðun væri líka vertíð. „Þegar dauð langreyður er dregin í gegnum hvalaskoðunarsvæði birtast tvær ólíkar framtíðarsýnir í sömu myndinni. Önnur byggir á því að drepa dýrið og selja afurðina þegar og ef markaðsaðstæður leyfa. Hin byggir á því að hvalurinn sé áfram í hafinu og skapi verðmæti aftur og aftur, fyrir fyrirtæki, starfsfólk, gesti, byggðarlög, ríkið og náttúruna,“ skrifaði Rannveig, framkvæmdastjóri Eldingar.
Hvalir Hvalveiðar Ferðaþjónusta Dýr Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira