Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Lovísa Arnardóttir skrifar 25. júní 2026 09:04 Hvalur kom til lands með fyrstu langreyðarnar í morgun. Vísir/Vilhelm Alls eru um 41 prósent andvíg veiðum á langreyðum og 26 prósent hvorki hlynnt né andvíg samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu sem framkvæmd var fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands. Niðurstöður sýna einnig að 33 prósent eru fylgjandi veiðunum.
Spurt var hvort að fólk væri hlynnt eða andvígt veiðum á langreyðum. Í niðurstöðum má sjá töluverðan kynjamun þar sem konur eru mun andvígari veiðunum en karlar en 44 prósent karla eru hlynnt veiðunum en aðeins 21 prósent kvenna. Þá eru eldri karlar líklegri til að styðja veiðarnar en þeir sem yngri eru. Almennt er yngra fólk andvígara veiðunum en það eldra. Um 21 prósent yngsta aldurshópsins er hlynnt veiðunum en 45 prósent þeirra sem eru í elsta aldurshópnum. Hlutfall þeirra sem eru hlynnt eftir aldri. Maskína Ef litið er til stjórnmálaskoðana má sjá í niðurstöðum að þau eru hlynntust veiðunum sem kjósa Miðflokkinn, 43 prósent, og Sjálfstæðisflokkinn, 24 prósent. Þau sem mest eru andvíg þeim eru líklegust til að kjósa Samfylkinguna, Pírata, Sósíalistaflokkinn og Vinstri græn. Hlutfall þeirra sem eru hlynnt eftir kyni. Maskína Frá árinu 2022 hefur hlutfall þeirra sem andvíg eru veiðum verið hærra en hlutfall þeirra sem hlynnt eru veiðum. Þá voru 35 prósent andvíg en 33 prósent hlynnt. Árið eftir, 2023, voru 42 prósent andvíg og 29 prósent hlynnt. Maskína mældi svo viðhorf þrisvar árið 2024 og var þá hlutfall þeirra sem voru andvíg 42 prósent í upphafi árs en 39 prósent við lok árs. Hlutfall þeirra sem voru hlynnt var 33 prósent í upphafi árs og 36 prósent við lok árs. Næsta mæling er svo sú nýjasta sem fór fram í lok apríl til upphafs maí á þessu ári. Alls svöruðu um 1018 könnuninni samkvæmt Maskínu. Mótmæli síðustu daga Hvalveiðum Hvals hf. hefur verið mótmælt síðustu daga. Hólmgeir Harðarson kom sér fyrir í tunnu á masti annars skipsins áður en þau héldu út í síðustu viku og svo voru haldin mótmæli á Austurvelli um helgina. Þá hafa samtök í nafni Paul Watson gefið út að skip á þeirra vegum sé er á siglingu sinni til landsins og að framundan sé Operation 86 eða aðgerð 86 og og er þar vísað til þess atburðar þegar aðgerðasinnar sökktu tveimur hvalveiðiskipum árið 1986. Nú sé á dagskrá að endurtaka leikinn og binda enda á hvalveiðar Íslendinga. Tónlistarmaðurinn Moby hefur nú lagt baráttu þeirra lið. Fyrstu langreyðarnar, sem veiðst hafa á Íslandsmiðum síðan 2023, voru dregnar á land snemma fyrr í vikunni. Ljósmyndari Vísis, Vilhelm Gunnarsson, myndaði þegar þær voru dregnar á land.
Hvalir Hvalveiðar Skoðanakannanir Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira