Hefja borun rannsóknarholu á Landeyjasandi í vikunni Atli Ísleifsson skrifar 15. júní 2026 11:04 Borinn Karl prins á landeyjasandi. Eyjagöng Allur undirbúningur er nú á lokastigi og er allt klárt til að hefja fóðrun og kjarnaborun á rannsóknarholunni EG-02 á Landeyjasandi. Verkefnið er einn af lykilþáttunum í viðamiklum jarðfræðirannsóknum sem munu skera úr um fýsileika þess að gera jarðgöng á milli lands og Vestmannaeyja.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eyjagöngum ehf., félagi með það að markmiði að draga úr óvissu varðandi framkvæmdakostnað á gerð jarðganga milli lands og Heimaeyjar. Fram kemur að vegna hinna sérstöku aðstæðna á Landeyjasandi, þar sem efstu lög jarðvegsins samanstandi af lausum sandi, verði byrjað á því að setja niður um fjörutíu metra langa fóðrun. Hlutverk hennar sé að tryggja fyllsta stöðugleika borholunnar áður en haldið verði dýpra niður í fastara berg. Samkvæmt svörum frá Haraldi Pálssyni, framkvæmdastjóra Eyjaganga, er gert ráð fyrir að vinna við fóðrun hefjist í dag og kjarnaborunin eftir tvo eða þrjá daga. „Þegar fóðruninni lýkur verður kjarnaborinn settur í gang, en áætlað er að bora holuna niður á allt að 300 metra dýpi. Markmiðið er að ná upp samfelldum kjarnasýnum sem munu veita vísindamönnum og verkfræðingum nákvæmar upplýsingar um gerð og styrk berglaganna undir sandinum. Slík gagnaöflun er algjör grundvöllur þess að hægt sé að hanna örugg jarðgöng og meta heildarkostnað verkefnisins,“ segir í tilkynningunni. Haft er eftir Haraldi að það sé tilkomumikið að sjá borinn Karl Prins standa í miðri sandfjörunni með eyjasýnina í bakgrunni. „Með því að bora niður á 300 metra dýpi fáum við áður óþekkt gögn um jarðlögin á þessu svæði, sem færir okkur nær raunhæfu mati á jarðgöngum til Eyja,“ segir Haraldur, en reiknað er með að gangaopið yrði ofar í landinu en líkt og með kjarnaborunina í Vestmannaeyjum, sé talið mikilvægt að ná kjörnum þar sem sleppir landi til að ná sem bestu sýnum á gangaleiðinni.
Rangárþing eystra Vestmannaeyjar Jarðgöng á Íslandi Samgöngumál Tengdar fréttir Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Stefnt er á að kjarnaborunum - í tengslum við jarðgangagerð til Vestmannaeyja - ljúki í lok árs. Framkvæmdastjóri Eyjaganga er ekki í vafa um að göngin séu arðbær og segir að ef allt gangi að óskum verði hægt að keyra á milli lands og eyja eftir tíu ár. 4. maí 2026 23:31 Eyjagöng sækja í sig veðrið með nýjum hluthöfum Verkefnið um jarðgöng til Vestmannaeyja er ekki lengur aðeins hugmynd á teikniborðinu. Með tilkomu nýrra hluthafa á borð við Landsbankann og N1 nálgast Eyjagöng nú fjárhagslegt markmið sitt hratt, á sama tíma og undirbúningur jarðgrunnsrannsókna fer af stað í lok apríl. 23. mars 2026 13:07 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira
Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Stefnt er á að kjarnaborunum - í tengslum við jarðgangagerð til Vestmannaeyja - ljúki í lok árs. Framkvæmdastjóri Eyjaganga er ekki í vafa um að göngin séu arðbær og segir að ef allt gangi að óskum verði hægt að keyra á milli lands og eyja eftir tíu ár. 4. maí 2026 23:31
Eyjagöng sækja í sig veðrið með nýjum hluthöfum Verkefnið um jarðgöng til Vestmannaeyja er ekki lengur aðeins hugmynd á teikniborðinu. Með tilkomu nýrra hluthafa á borð við Landsbankann og N1 nálgast Eyjagöng nú fjárhagslegt markmið sitt hratt, á sama tíma og undirbúningur jarðgrunnsrannsókna fer af stað í lok apríl. 23. mars 2026 13:07