„Ég er þeim ævinlega þakklátur“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. júní 2026 15:18 Lewis Hamilton fagnar sigri sínum í Barcelona en hann var búinn að bíða lengi eftir sínum fyrsta sigri með Ferrari. Getty/Clive Rose Lewis Hamilton vann sinn fyrsta kappakstur í dag sem ökumaður Ferrari en hann keyrði hraðar en allir í Barcelona-Catalunya kappakstrinum. Lewis Hamilton fagnaði líka sigrinum vel og var kátur í viðtali eftir að hann tók við verðlaunum. „
Fyrst verð ég að byrja á því að segja risastórt grazie við alla hér, liðið mitt hér, Ferrari, alla í verksmiðjunni, Fred fyrir að trúa á mig og fá mig í þetta lið,“ sagði Lewis Hamilton eftir sigurinn. „Þetta byrjaði allt með draumi á síðasta ári, sem virtist nánast ómögulegur á þeim tíma, en við gáfumst aldrei upp og liðið hélt áfram að lyfta mér upp. Við gerðum svo margar breytingar og svo margar umbætur,“ sagði Hamilton. „Auk þess á ég bestu stuðningsmenn sem íþróttamaður getur beðið um. Þannig að takk, takk allir,“ sagði Hamilton. Um hvar þessi sigur raðast meðal 106 sigra hans á ferlinum: „Þeir eru allir sérstakir á sinn hátt. En þessi er eitthvað allt annað. Ég horfði á Ferrari ná öllum þessum árangri þegar ég var yngri, horfði á það í sjónvarpinu og á meðan ég hef keppt hef ég alltaf horft á skjáina og velt því fyrir mér hvernig það væri að sigra í þeim bíl og nú er það orðið að veruleika,“ sagði Hamilton. „Allir hafa lagt hart að sér fyrir þetta og allir eiga það skilið. Ég er þeim ævinlega þakklátur og þetta er bara sá fyrsti af, vonandi, mörgum. Frábær þjónustuhlé í dag, frábær herkænska. Bíllinn var frábær, Forza Ferrari,“ sagði Hamilton. The moment of victory! #F1 #BarcelonaGP @LewisHamilton pic.twitter.com/ET9mkIA9MC— Formula 1 (@F1) June 14, 2026
Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Íslenski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Fleiri fréttir Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Fær verðlaunagripinn aftur þrem mánuðum eftir að hafa gefið hann frá sér Hamilton getur bætt met Schumacher þegar Ferrari heiðrar hann Antonelli refsað og byrjar heimakappaksturinn aftastur Lando Norris stofnar sitt eigið lið Hadjar frá í aðra keppni Norris langar ekki að vinna með öðrum liðum og framlengir við McLaren Ferrari heiðrar Schumacher á heimavelli Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Norris náði öðrum sigri Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Norris náði ráspólnum aftur Russell vann sprettinn í þriðja sinn Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina „Ég var nær því að hætta heldur en að skipta um lið“ Verstappen skrifaði undir nýjan samning Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Framlengir þrátt fyrir að liðið sé í verri stöðu Rússar og Belarússar fá að keppa aftur Nýliðarnir skipta um liðsstjóra Ætlar að blanda sér í baráttuna við Ferrari og Mercedes Fór á skeljarnar í sumarfríinu Ökumaður Formúlu 1 vann sér keppnisrétt á heimsmeistaramóti á miðju tímabili Sjá meira