Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júní 2026 22:00 James Harden deilir hér við dómarann í leik með Cleveland Cavaliers í úrslitakeppninni. Getty/Jason Miller James Harden, leikstjórnandi Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni í körfubolta, var handtekinn snemma á laugardagsmorgun í Houston og hefur verið ákærður fyrir minniháttar brot vegna ólöglegs vopnaburðar.
Samkvæmt dómsskjölum í Harris-sýslu var Harden tekinn í gæsluvarðhald klukkan 3:41 að morgni þegar skammbyssa sást í sæti bíls sem Harden á. Byssan var ekki í hulstri og var vel sýnileg, samkvæmt skjölunum. Harden var færður til bókar klukkan 4:57 og síðar látinn laus gegn hundrað dollara tryggingu. Fyrirtaka í máli hans er áætluð 22. júní, samkvæmt vefsíðu dómstólsins. „Cleveland Cavaliers er kunnugt um handtöku James Harden í morgun og er að afla frekari upplýsinga,“ sagði í yfirlýsingu frá Cavaliers. „Við erum í sambandi við James og umboðsmenn hans og munum fylgjast með framvindu mála. Að svo stöddu munum við ekki tjá okkur frekar.“ Cavaliers guard James Harden was arrested early Saturday morning in Houston and has been charged with a misdemeanor unlawful carrying of a weapon. https://t.co/luDnCs1rBv— ESPN (@espn) June 13, 2026 Harden gæti orðið samningslaus í lok mánaðarins. Hann hefur valrétt á samningi sínum upp á 42 milljónir dollara, 5,2 milljarða króna, sem hann þarf að taka ákvörðun um fyrir 29. júní, en aðeins 13,3 milljónir Bandaríkjadala eru tryggðar eða 1,6 milljarðar. Búist hefur verið við því að Harden myndi afþakka valréttinn og skrifa undir nýjan margra ára samning til að vera áfram í Cleveland, en þangað fór hann í leikmannaskiptum í febrúar. Hinn 36 ára gamli Harden var með 19,2 stig og 5,5 stoðsendingar að meðaltali í úrslitakeppninni og hjálpaði Cavaliers að komast í úrslit Austurdeildarinnar.
NBA Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti 42 ára aldursmunur á keppendum í 1500 metra hlaupi kvenna Sport Fleiri fréttir Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Sjá meira