Deila í dómsal um hvort réttarhöldin verði opin Samúel Karl Ólason skrifar 1. júní 2026 07:48 Tyler Robinson í dómsal í síðasta mánuði. AP/Trent Nelson, Salt Lake Tribune Ákveðið verður í dag, mánudag, hvort að upphaf réttarhaldanna gegn manninum sem grunaður er um að hafa myrt Charlie Kirk verði opið almenningi og fjölmiðlum. Verjendur mannsins, sem heitir Tyler Robinson, vilja að réttarhöldin verði lokuð og hafa einnig krafist þess að mikið af sönnunargögnum í málinu verði ekki opinberuð á þeim grunni að þau gætu haft áhrif á mögulega kviðdómendur.
Í upphafi júlí munu saksóknarar mæta í dómsal þar sem þeir þurfa að sýna fram á að þeir hafi aflað nægilega mikilla sönnunargagna gegn Robinson, svo réttarhöldin geti farið fram. Verjendur Robinsons hafa reynt að draga úr aðgengi fjölmiðla af málaferlunum og segja hann hafa verið sýndan í röngu ljósi. Robinson er 23 ára gamall og er grunaður um að hafa skotið Charlie Kirk á færi, þar sem hann var á viðburði í háskóla í Utah í Bandaríkjunum í september í fyrra. Charlie Kirk, var áhrifamikill áhrifavaldur á hægri væng stjórnmála Bandaríkjanna og tengdist fjölskyldu Donalds Trump forseta vinaböndum. Sjá einnig: Hver var Charlie Kirk? Talið er að Robinson hafi myrt Kirk vegna pólitískra skoðana hans og ætla saksóknarar að fara fram á dauðarefsingu. Robinson hefur ekki enn tekið afstöðu gagnvart ákærunum og lýst yfir sakleysi sínu eða játað. Samkvæmt AP fréttaveitunni vilja saksóknarar að réttarhöldin verði opin almenningi en eru sammála um að hluti sönnunargagnanna ætti að vera leynilegur. Í dómsal í dag munu þeir sýna ýmis sönnunargögn eins og upptökur úr öryggismyndavélum, greiningu á sýnum af vettvangi, upptökur af vitnaleiðslum og skilaboð frá Robinson, þar sem hann á að hafa játað að hafa framið morðið. Þá segja yfirvöld að lífsýni úr Robinson hafi fundist á gikk riffilsins sem notaður var til að myrða Kirk og á skotfærum og handklæði sem riffillinn var falinn í. Þá segja saksóknarar að hann hafi skilið eftir miða hjá kærustu sinni þar sem hann sagðist hafa tækifæri til að ganga frá Kirk og að hann ætlaði að nýta sér það.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Morðið á Charlie Kirk Erlend sakamál Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Sjá meira