Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Árni Sæberg skrifar 27. maí 2026 11:30 Hildur kynnti nýjan borgarstjórnarmeirihluta í Viðey. Vísir/Vilhelm Hildur Björnsdóttir verður nýr borgarstjóri Reykjavíkurborgar. Einar Þorsteinsson verður formaður borgarráðs og Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar en þau munu skiptast á hlutverkum þann 1. júní 2027.
Þetta er meðal þess sem kom fram á blaðamannafundi þeirra þriggja í Viðey í morgun. Lesa má um allt sem þar kom fram í fréttinni hér að neðan: Hildur hefur setið í borgarstjórn Reykjavíkur frá árinu 2018 og verið oddviti flokksins síðastliðin fjögur ár. Hún er 39 ára, lögfræðingur og stjórnmálafræðingur að mennt. Hún tekur formlega við völdum sem 24. borgarstjóri Reykjavíkur þann 2. júní næstkomandi. Flokkurinn aftur orðinn að breiðfylkingu Hildur sagði á blaðamannafundinum að Sjálfstæðisflokkurinn væri aftur orðinn að breiðfylkingu. Það hefði gert myndun meirihluta snúnari en ella, ýmsir möguleikar hefðu verið á borðinu. Á mánudag hefði þó verið gengið til formlegra viðræðna við Framsókn og Viðreisn. Sá meirihluti ætti að skapa meiri sátt og bæta samvinnu þvert á meirihluta og minnihluta. Það ríkti mikið traust og trúnaður á milli hennar og Einars og Bjargar. Síðasta kjörtímabil hefði verið kjörtímabil mikils óstöðugleika. Láta hendur standa fram úr ermum Þá sagði hún flokkana þrjá hafa boðað breytingar og þeir ætluðu að láta hendur standa fram úr ermum. Öll væru þau Einar og Björg fjölskyldufólk og ætluðu sér að gera breytingar á rekstri og samgöngukerfi borgarinnar. Samkvæmt samstarfssáttmála Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar ætla flokkarnir að svara ákalli borgarbúa eftir breytingum í Reykjavík.
Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Framsóknarflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Sjá meira