Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Stefán Árni Pálsson skrifar 22. maí 2026 14:02 Elvar Már Friðriksson leikur með Tenerife næstu vikurnar. Getty/Jón Gautur Landsliðsmaðurinn Elvar Már Friðriksson er orðinn leikmaður Tenerife í ACB deildinni á Spáni. Hann var aðeins búinn að ver á landinu í nokkrar klukkustundir þegar hann var farinn aftur út til Spánar.
Elvar gerir samning við félagið út yfirstandandi tímabil en liðið háir harða baráttu um sæti í úrslitakeppni spænsku deildarinnar um þessar mundir. Hann kemur til liðsins frá Anwil Wloclawek í Póllandi en spænska liðið á aðeins tvo leiki eftir í deildarkeppninni. Með liðinu spila þaulreyndir NBA leikmenn á borð við Patty Mills og Marcelo Huertas. „Við fórum í smá frí fjölskyldan til Malaga eftir tímabilið og svo varð ég að fljúga til Póllands og sækja töskurnar og fékk hringingu frá umboðsmanninum um að Tenerife væri með tilboð á borðinu og hvort ég væri til í að stökkva á það og horfði á konuna mína og spurði hvort ég ætti að taka þessu og hún bara: „ekki spurning.“ Þannig að þetta var ákveðið á einhverjum þrem, fjórum mínútum,“ segir Elvar Már í Sportpakkanum á Sýn í gær. Í landinu í sex klukkustundir „Svo hoppuðum við í næsta flug til Íslands og ég var þar í sex klukkutíma, svo fór ég til baka til Spánar.“ Ína María Einarsdóttir er kona Elvars og eiga þau von á barni í júlí. Hún fer því ekki með honum til Tenerife og verður eftir á Íslandi. „Hún er bara heima, þannig ég ákvað að taka þetta. Strákurinn minn er að klára skólaárið og svona heima, þannig að ég tek þetta verkefni á mig.“ Tenerife ætlar sér í úrslitakeppnina í ACB-deildinni. „Það eru tveir leikir eftir og ég held að einn sigur dugi til að komast í úrslitakeppni. Leikstjórnandinn þeirra meiðist og er frá í einhverja daga og þeir þurftu bara mann í hvelli, þannig að ég ákvað að stökkva á það. Þeir voru búnir að heyra í mér áður í vetur, í febrúar, og sendu þeir mér tilboð og ég reyndi að komast en liðið mitt í Póllandi hleypti mér ekki, þannig að það var gaman að geta fengið aftur tækifæri á þessu, þannig að ég gat ekki sagt nei við því. Þetta er risaklúbbur og að koma hérna og sjá aðstæðurnar og svona bara batteríið í kringum þetta þá sér maður að þetta er risastórt batterí, ég svona áttaði mig ekki alveg á því.“
Körfubolti Spænski körfuboltinn Mest lesið Blaðamannafundi lauk skyndilega með sorglegum fréttum Fótbolti Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Fótbolti Uppgjör Þór Ak. - KR | 3-3. Endurkoma hjá KR Íslenski boltinn Hættur í landsliðinu þar til skipt verður um þjálfarateymi Fótbolti Eiður Smári besti sérfræðingurinn á HM Fótbolti Hvor goðsögnin kveður í kvöld? Fótbolti Ísland - Ítalía | Strákarnir fara áfram með sigri Körfubolti Víkingur - KA | Heldur sigurgangan áfram? Íslenski boltinn „Ha? Hvernig getur það verið?“ Sport Móðir NFL-stjörnu fannst látin og bróðir hans ákærður fyrir morð Sport Fleiri fréttir Ísland - Ítalía | Strákarnir fara áfram með sigri Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjá meira