Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Magnús Jochum Pálsson skrifar 22. maí 2026 10:11 Herra hnetusmjör og Birgitta Haukdal sömdu Þjóðhátíðarlagið „Flugelda“ í ár og flytja það í dalnum í sumar. Vísir/Vilhelm Birgitta Haukdal og Herra hnetusmjör eru höfundar og flytjendur lagsins „Flugeldar“ sem er Þjóðhátíðarlagið í ár. Þau frumfluttu lagið í Brennslunni á FM957 í morgun en það fangar eftirvæntinguna eftir því að mæta í Herjólfsdalinn.
Það eru sjötíu dagar í Þjóðhátíð sem fer fram um verslunarmannahelgina í Vestmannaeyjum frá 31. júlí til 3. ágúst. Tilvonandi þjóðhátíðargestir bíða á hverju ári spenntir eftir því að heyra hvernig nýtt þjóðhátíðarlag hljómar. Greint var frá því í apríl að poppstjarnan Birgitta Haukdal og rapparinn Herra hnetusmjör, réttu nafni Árni Páll Árnason, myndu semja og flytja lagið í ár. Birgitta Haukdal er fyrrverandi söngkona Írafárs, Eurovision-fari og farsæl poppsöngkona. Herra hnetusmjör hefur verið einn vinsælasti rappari landsins síðustu tíu ár. Þau þekkjast sömuleiðis vel eftir að hafa verið dómarar saman í síðustu tveimur seríunum af Idol stjörnuleit. Birgitta og Herra mættu til Rikka G og Egils Ploder í Brennsluna í morgun til að ræða Þjóðhátíð í sumar, lagið nýja og frumflytja það jafnframt. „Þetta gætu reyndar verið svölustu mæðgin í heiminum,“ sagði útvarpsmaðurinn Rikki G þegar Árni og Birgitta mættu í útvarpsverið. „Hættu að segja þetta, mér fannst ég ógeðslega kúl fyrir svona hálfri mínútu,“ svaraði Birgitta Haukdal sem var ekki sátt við að vera minnt á aldur sinn. „Þá fá þau bara lag frá Birgittu Haukdal og Herra hnetusmjör“ Aðdragandinn að laginu var hvorki langur né flókinn, að sögn Birgittu. Lagið kom síðan að sjálfu sér án þess að höfundarnir þyrftu að tala sig saman um nálgunina sérstaklega. „Þau vildu bara fá besta fólkið í þetta og hringdu. Ég er að aðeins að reyna að peppa sjálfa mig, stækka mig,“ segir Birgitta og bætir við: „Það kom símtal, þau vildu eitthvað gott og ferskt.“ Birgitta og Herra kunna þetta. Birgitta segir þau ekkert hafa rætt hvernig lagið ætti að vera heldur einfaldlega bara farið í stúdíóið og búið til bombu. Þau hafi bæði viljað fanga eftirvæntinguna eftir því að mæta í Herjólfsdalinn. „Við vildum fanga tilfinninguna þegar þú ert á leiðinni í dalinn. Við vorum mjög sammála, án þess að strika eitthvað niður, hvernig við vildum gera þetta. Um leið og við byrjuðum að vinna saman vorum við rosalega sammála í hvaða átt við vildum taka þetta lag,“ sagði Árni. „Það er ástæða fyrir því að Þjóðhátíðarnefnd er að heyra í Birgittu Haukdal og Herra hnetusmjör. Þá fá þau bara lag frá Birgittu Haukdal og Herra hnetusmjör,“ bætti hann við. „Við vorum sammála um það að við ætluðum að gera Þjóðhátíðarlag sem væri ekki eins og neitt annað Þjóðhátíðarlag. Nú gerum við eitthvað nýtt og ferskt og stöndum og föllum með því,“ sagði Birgitta. Lagið var frumflutt í Brennslunni á FM957 í morgun. Lagið og viðtalið við meðlimi Stuðlabandsins má heyra í spilaranum hér að neðan en lagið hefst á mínútu 5:00.
Þjóðhátíð í Eyjum Tónlist Brennslan FM957 Vestmannaeyjar Mest lesið Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Lífið Heiður að endurvekja falda perlu Palla Tónlist Frægustu mágar landsins Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Fleiri fréttir Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Heiður að endurvekja falda perlu Palla Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Suki dásamar Laufeyju Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Innipúkunum fjölgar enn Bonnie Tyler er látin Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Söngvari YMCA látinn Sjá meira