Körfubolti

Elvar Már ó­vænt til Tenerife út tíma­bilið

Aron Guðmundsson skrifar
Elvar Már Friðriksson spilar með La Laguna út yfirstandandi tímabíl.
Elvar Már Friðriksson spilar með La Laguna út yfirstandandi tímabíl. Getty/Jón Gautur

Ís­lenski lands­liðs­maðurinn í körfu­bolta, Elvar Már Friðriks­son, er orðinn leik­maður La Laguna Tenerife á Spáni og gerir samning við félagið út yfir­standandi tíma­bil en liðið háir harða baráttu um sæti í úr­slita­keppni spænsku deildarinnar um þessar mundir.

Elvar kemur til La Laguna Tenerife, sem hefur verið eitt af sterkustu liðum spænsku úrvalsdeildarinnar undanfarin ár, frá Anwil Wloclawek í Póllandi en spænska liðið á aðeins tvo leiki eftir í deildarkeppni spænsku deildarinnar og er í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppni deildarinnar. Elvar mætti til Tenerife í gær og horfði á nýju liðsfélaga sína tapa fyrir Joventut. 

Á sínum atvinnumannaferli hefur Elvar spilað í löndum á borð við Frakkland, Svíþjóð, Litáen, Belgíu, Ítalíu, Lettland, Grikkland og Pólland og nú reynir hann fyrir sér í hinni ógnarsterku spænsku deild.

Elvar Már er uppalinn í Njarðvík og í morgun gekkst hann undir læknisskoðun hjá La Laguna Tenerife og ætti að verða klár í næsta leik liðsins gegn Granada á laugardaginn kemur. Með liðinu spila þaulreyndir NBA leikmenn á borð við Patty Mills og Marcelo Huertas.

Elvar hefur að meðaltali skorað 13.5 stig í leik með Anwil á tímabilinu og tekið 6,3 stoðsendingar. Hann var valinn besti leikmaður aprílmánaðar í pólsku deildinni og hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu um árabil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×