Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 8. maí 2026 14:24 Íris Edda Jónsdóttir sveitarstjóri Vopnafjarðar. Kjörtímabilið sem nú er að líða hefur verið gríðarlega erfitt á Vopnafirði. Oddviti segir ólgu hafa gert vart við sig og ritstjóri Austurfrétta líkir kjörtímabilinu við tímabil hjá fótboltaliði í krísu.
Fréttastofa hélt á dögunum til Austurlands og tók Austfirðinga tali um stóru málin fyrir kosningarnar. Óhátt er að segja að staðan á Vopnafirði hafi vakið athygli en í febrúar var samið um starfslok sveitarstjórans, oddviti meirihlutans hætti í kjölfarið og ákvað sveitarstjórnarfulltrúi nokkrum dögum síðar að gefa ekki kost á sér í komandi kosningum. Ekki verða kosningar á Vopnafirði 16. maí þar sem einungis eitt framboð barst, Sterk stoð. Sá framboðslisti telst því sjálfkjörinn. Framsóknarflokkurinn og óháðir náðu fjórum mönnum inn á móti þremur fulltrúum Vopnafjarðarlistans í kosningunum árið 2022. Náðu ekki að berja saman lista „Erfitt kjörtímabil á Vopnafirði, mjög erfitt kjörtímabil. Í heildina þrír sveitarstjórar. Þetta er bara eins og eitthvert tímabil hjá fótboltaliði í krísu,“ segir Gunnar Gunnarsson ritstjóri Austurfrétta. „Þetta hefur haft áhrif út í samfélagið, erfiður mórall og við sjáum það að öll sveitarstjórn hættir. Þessir flokkar sem hafa verið sterkir, meina þar hefur Framsókn verið sterk sögulega á móti félagshyggjuframboði, hvorug þessara hreyfinga nær að berja saman lista. Þetta er bara mjög erfið staða.“ Íris Edda Jónsdóttir sveitarstjóri og oddviti Sterkrar stoðar á Vopnafirði segir ólgu hafa gert við sig á kjörtímabilinu. „Það hefur bara alveg verið svolítil ólga eins og hefur sést í fjölmiðlum en mér finnst bara það allt vera að koma til og fólk hefur náttúrulega ólíkar skoðanir og sjónarhorn en mér finnst bara stemningin mjög góð hjá okkur,“ segir Íris. „Það er vissulega mjög sérstakt að vera sjálfkjörin en við vorum að búast við mótframboði alveg fram á síðustu stundu og áttum von á því að vera að fara í kosningabaráttu núna. Þannig að það er vissulega breytt plön en við erum í góðu samtali við íbúa og ætlum að halda því áfram. Svo við ætlum bara að vinna af heilindum og metnaði fyrir sveitarfélagið okkar. Það var þess vegna sem við fórum fram.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vopnafjörður Tengdar fréttir Sjálfkjörið á Vopnafirði Einungis einn framboðslisti barst yfirstjórn Vopnafjarðarhrepps fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar og telst hann því sjálfkjörinn. Um er að ræða nýjan framboðslista sem kallar sig Sterk stoð, en Íris Edda Jónsdóttir, verkefnastjóri stjórnsýslu, leiðir listann. 15. apríl 2026 08:05 Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Fleiri fréttir Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Sjá meira
Sjálfkjörið á Vopnafirði Einungis einn framboðslisti barst yfirstjórn Vopnafjarðarhrepps fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar og telst hann því sjálfkjörinn. Um er að ræða nýjan framboðslista sem kallar sig Sterk stoð, en Íris Edda Jónsdóttir, verkefnastjóri stjórnsýslu, leiðir listann. 15. apríl 2026 08:05