Uppgjörið: Fram - Þróttur 0-3 | Þróttur áfram á sigurbraut en Fram ennþá án stiga Hjörvar Ólafsson skrifar 5. maí 2026 21:04 Þróttur - FH Besta Deild Kvenna Vor 2026 vísir/Diego Þróttur lagði Fram að velli með þremur mörkum gegn engu þegar liðin áttust við í þriðju umferð Bestu-deildar kvenna í fótbolta á Lambhagvellinum í Úlfarsárdal í kvöld. Fram hafði beðið lægri hlut í fyrstu tveimur leikjum sínum í deildinni, gegn nýliðum ÍBV og Breiðabliki, á meðan Þróttur tapaði fyrir Breiðablik og lagði svo FH að velli í síðustu umferð. Leikurinn fór fremur rólega af stað en fyrsta færið leit dagsins ljóst eftir rúmlega stundarfjórðungs leik. Mist Funadóttir fann þá Unni Dóru Bergsdóttur á fjærstönginni með fyrirgöf sinni. Unnur Dóra náði ekki að setja boltann framhjá Ashley Brown Orkus í marki Fram. Þegar rúmur hálftími var liðinn af leiknum braut Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir ísinn. Boltinn hrökk fyrir fætur Sigríðar Theódóru sem tók boltann á lofti og lagði hann snyrtilega í netið. Ashley Brown kom engum vörnum við. Mun meira fjör í seinni hálfleik Alda Ólafsdóttir var nálægt því að jafna metin í upphafi seinni hálfleiks en hún slapp þá í gegn eftir laglegan þríhyrning við Söru Svanhildi Jóhannsdóttur. Alda náði að sigra Mollee Swift, í marki Þróttar, en boltinn fór hársbreidd framhjá stönginni. Unnur Dóra fékk svo annað gott færi skömmu síðar en henni brást bogalistin með skoti sínu. Seinni hálfleikur var mun fjörugri en sá fyrri og Hildur María Jónasdóttir fékk dauðafæri þegar tæplega tíu mínútur voru búnir af seinni hálfleiknum. Hildur María komst þá inn í slaka sendingu Mistar Funadóttur aftur á Mollee sem bjargaði liðsfélaga sínum með góðri markvörslu. Þegar leikurinn var klukkutíma gamall tvöfaldaði Jelena Tinna Kujundzic forystu Þróttar. Jelena Tinna skallaði boltann í netið eftir sendingu frá félaga sínum í hjarta varnarinnar, Sæunni Björnsdóttur. Fram átti meira skilið úr leiknum Kayla Marie Rollins fékk kjörið tækifæri til þess að bæta við þriðja marki Þróttar um miðjan seinni hálfleikinn. Brynja Rán Knudsen gerði þá vel í að setja Kaylu í gegn en skot framherjans hitti ekki markrammann. Harpa Helgadóttir hjó nærri því að strengja líflínu fyrir Fram undir lok leiksins en góð skottilraun hennar fór framhjá marki Þróttara. Þórdís Nanna Ágústsdóttir rak síðan síðasta naglann í líkkistu Fram þegar hún skilaði fyrirgjöf Alexiu Marin Czerwien í netið í uppbótartíma leiksins. Stuttu áður hafði Hekla Dögg Ingvarsdóttir átt gott skot sem Ashley Brown varði vel. Niðurstðan 3-0 sigur Þróttar í skemmtilegum fótboltaleik. Fram er þar af leiðandi enn í leit að sínum fyrstu stigum í deildinni í sumar á meðan Þróttur er kominn með sex stig eftir þrjá leiki líkt og Breiðablik og ÍBV eftir tvo leiki. Jóhann Kristinn Gunnarsson gefur Þórdísi Elvu Ágústsdóttur góð ráð. vísir/Diego Jóhann Kristinn: Getum gert mun betur „Við vissum það fyrir leikinn að það yrði erfitt að brjóta vel skipulagt og gott lið Fram á bak aftur og það varð raunin. Mér fannst við ekki nógu góðar í þessum leik, sendingar voru ekki nógu nákvæmar og við vorum bara sloppý í öllum sem við vorum að gera,“ sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfar Þróttar, að leik loknum. „Það var hins vegar barátta í því sem við vorum að gera og við lögðum mikið í það að halda markinu hreinu sem er jákvætt. Við förum héðan með þrjú stig en þurfum að gera betur svo í framhaldinu. Það er alveg ljóst. Staðan á liðinu er fín en við hefðum viljað vera með fleiri stig,“ sagði Jóhann Kristinn enn fremur. „Skiptingarnar sem við gerðum hleyptu lífi í leik okkar og ég er sáttur við innkomu varamannanna. Við erum með stóran leikmannahóp af gæðamiklum leikmönnum. Þeir sem fóru út af í dag voru ekki að spila illa svo síður sé. Breiddin í hópnum er bara slík að við getum leyft okkur þann munað að dreifa álaginu. Síðan eru leikmenn sem hafa ekki snert grasið eða gervigrasið enn sem komið er sem kæmust hæglega í flest lið í deildinni. Það er auðvitað miður en við erum á sama himinlifandi með hversu marga góða leikmenn við höfum innanborðs,“ sagði hann. Anton Ingi: Erum að gefa of einföld mörk „Þetta var klárlega óþarflega stórt tap miðað við gang leiksins. Við fengum nokkur góða færi í upphafi seinni hálfleiks og svo fleiri færi seinna í leiknum. Við nýttum ekki færin nógu vel og því fór sem fór,“ sagði Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Fram eftir leik. „Að sama skapi erum við að gefa allt of auðveld mörk og það er einbeitingarleysi sem verður okkur að falli í þessum leik. Við erum að gefa boltann frá okkur á hættulegum stöðum og ekki að vinna varnarvinnuna nógu vel,“ sagði Anton Ingi þar að auki. „Það jákvæða var hins vegar að mér fannst við halda boltanum betur en í fyrstu tveimur leikjunum og koma okkur í fleiri stöður til þess að skapa álitleg færi. Nú þurfum við bara að nýta færin betur og skrúfa fyrir lekann í varnarleiknum,“ sagði hann. „Það þýðir ekkert að dvelja við þetta tap. Við þurfum bara að fara upp á hestinn aftur. Taka það jákvæða úr þessum leik og mæta öflugar til leiks á móti Víkingi í næstu umferð. Það er stígandi í leik liðsins og stigin fara að detta inn,“ sagði Anton um framhaldið. Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari FramVísir/Guðmundur Þórlaugarson Atvik leiksins Mörkin tvö stóðu upp úr í leik sem var bragðdaufur framan en það lifnaði hressilega yfir leiknum þegar líða tók á og seinni hluta hans var mun meira fyrir augað en sá fyrri. Frammarar hefðu hæglega getað fengið meira en ekkert út úr leiknum. Stjörnur og skúrkar Sæunn og Jelena Tinna áttu góðan leik í miðri vörn Þróttar og sáu um annað mark gestanna. Molle Swift greip vel inn í þegar þess þurfti og mark Sigríðar Theódóru var huggulegt. Unnur Dóra Bergsdóttir var svo spræk á kantinum. Hjá Fram voru Alda Ólafsdóttir, Hildur María Jónasdóttir, Sara Svanhildur Jóhannsdóttir og Taylor Marie Hamlet líflegar og hættulegar í sóknarleik liðsins. Dómarar leiksins Dómarar leiksins, þeir Atli Björn E. Levy, Ragnar Arelíus Sveinsson, Elías Baldvinsson og Óliver Thanh Tung Vú, áttu fremur náðuga vakt og sinntu sínum störfum af stakri prýði. Þeir félagar fá sjö í einkunn fyrir dómgæslu sína. Stemming og umgjörð Rjómablíða í Úlfarsárdal og ágætis mæting í Dal draumanna. Frammarar fengu dyggan stuðning en það heyrðist minna í gestunum frá Laugardalnum sem voru þó nokkrir mættir. Hamborgarinn sem boðið var upp á var ansi ljúffengur. Besta deild kvenna Fram Þróttur Reykjavík