Leik lokið: Stjarnan 105-103 Tinda­stóll | Í kjörstöðu eftir flautukörfu í framlengdum leik

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Hilmar Smári með hetjukörfu
Hilmar Smári með hetjukörfu Vísir/Ernir

Stjarnan er komið 2-0 yfir í einvígi sínu gegn Tindastól í undanúrslitum Bónus deildar karla í körfubolta eftir sigur í ótrúlegum leik sem fór í framlengingu. Hilmar Smári Henningsson tryggði Stjörnunni sigur með flautukörfu.

Það var allt í járnum fyrstu mínúturnar í fyrsta leikhluta en tapaðir boltar og illa nýttar sóknir hjá heimamönnum í Stjörnunni gerðu Tindastóli kleift að komast í átta stiga forystu þegar leikhlutanum lauk.

Stjörnumenn héldu áfram að missstíga sig í öðrum leikhluta. Mest komust Tindastóll í 21 stiga mun og unnu þeir leikhlutann 28-17. Nítján stigum munaði á liðunum þegar flautað var til hálfleiks.

Stjarnan byrjaði þriðja leikhluta afskaplega vel á meðan ekkert gekk upp hjá gestunum. Á 24. mínútu fékk Giannis fimmtu villuna sína og lauk þar með leik. Stjörnumenn gerðu vel og tókst liðinu að komast í tveggja stiga forystu þegar Luka setti niður frábæran þrist á lokasekúndunum.

Stjarnan vann þá þriðja leikhluta 29-8 og tókst að snúa leiknum algjörlega við.

Í fjórða leikhluta skiptust liðin á að taka forystuna. Seth LeDay bættist svo í fimm villu klúbbinn á 39. mínútu og Stjarnan í raun án fjögurra lykilleikmanna síðustu mínúturnar.

 Leikhlutanum lauk 87-87 og grípa þurfti til framlengingar.

Luka og Bjarni fengu fimmtu villuna sína í framlengingunni og luku þar með leik. Það má því segja að Stjörnumenn hafi misst byrjunarliðið sitt af velli.

Þegar sjö sekúndur voru eftir af framlenginunni munaði þremur stigum á liðunum, 103-100. Basile gerði þá hið ótrúlega og setti niður þrist til að jafna. 

Tvær sekúndur eftir fyrir Stjörnuna til þess að tryggja sér sigurinn og það gerði Hilmar Smári sem setti niður sturlaða flautukörfu.

Stjarnan sigrar því 105-103 og leiðir nú einvígið 2-0. Næsti leikur er á Sauðárkróki og það verður hörkuleikur.

Atvik leiksins

Það verður að vera slagsmálin milli þjálfarana að leik loknum. Þeir hins vegar sættust skömmu seinna sem betur fer.

Stjörnur og skúrkar

Hilmar Smári Henningsson átti frábæran leik fyrir Stjörnuna fyrir utan það að tryggja Stjörnunni sigurinn þá var hann með 36 stig. Bjarni Guðmann kom þar næstur með 20 stig og átta fráköst.

Þakið á höllinni ætlaði að fjúka af.Vísir/Ernir Eyjólfsson

Basile var stigahæstur hjá Tindastóli með 32 stig, sjö fráköst og fjórar stoðsendingar.

Stemning og umgjörð

Það var þvílík stemning hérna í ÞG-höllinni. Uppselt á leikinn og það heyrðist vel í stuðningsmönnum beggja liða allan leikinn.

Mikið af stemningsmönnum í Garðabæ.Vísir/Ernir Eyjólfsson

Dómarar

Sigmundur Már, Davíð Kristján og Bjarni Hlíðkvist stóðu vaktina á parketinu í kvöld. Mikil læti og mikið tuðað í blessuðu dómurunum í leiknum. Heilt yfir gott kvöld hjá strákunum.

Það þarf að minnka skjátímann hjá þessum.Vísir/Ernir Eyjólfsson

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira