Sigurður fór hringinn á tíu höggum undir pari Ágúst Orri Arnarson skrifar 18. apríl 2026 13:02 Sigurður Arnar átti glæsilegan golfhring í Póllandi í dag. golf.is / Seth@golf.is Sigurður Arnar Garðarsson lék í dag einn besta golfhring sem íslenskur kylfingur hefur farið á alþjóðlegu atvinnumannamóti. Sigurður lauk leik tíu höggum undir pari á Sand Valley Spring Series Finals móti í Póllandi í dag.
Sigurður byrjaði hringinn á tíundu holu Sand Valley Golf Resort og fór af stað af krafti, með þrjá fugla og örn á fyrstu sex holum hringsins. Á sautjándu holunni bætti hann einum fugli við og lék seinni níu holurnar því á 30 höggum, sex undir pari. Eftir tvö pör á næstu tveimur holum fóru fuglarnir að hrannast inn á ný. Þrír fuglar í röð duttu á holum þrjú, fjögur og fimm, og Sigurður kominn níu undir par eftir fjórtán holur. Fugl á áttundu holunni kom Sigurði tíu undir par og par á síðustu holu dagsins fullkomnaði þennan magnaða hring. Með árangrinum flýgur Sigurður upp stöðutöfluna. Fyrir hringinn var hann jafn í 30. sæti en Sigurður er nú jafn í fjórða sæti mótsins. Stór hópur íslenskra afrekskylfinga eru einnig á meðal keppenda mótsins, sem er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni sem er sú þriðja sterkasta í Evrópu. Íslensku kylfingarnir eru: Aron Snær Júlíusson, GKG Dagbjartur Sigurbrandsson, GR Daníel Ísak Steinarsson, GK Hlynur Bergsson, GKG Logi Sigurðsson, GS Sigurður Arnar Garðarsson, GKG Skúli Gunnar Ágústsson, GKG Aron Snær lék fyrsta hringinn á 71 höggi, en Dagbjartur, Skúli og Logi léku hann allir á 72 höggum. Hlynur lék á 74 höggum og Daníel Ísak kom í hús á 79 höggum. Nánar má lesa um mótið á heimasíðu Golfsambands Íslands.
Golf Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Rahm segist vilja rifta við LIV Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira