Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Kristján Már Unnarsson skrifar 13. apríl 2026 22:00 Hæð flugvélarinnar sést vel í samanburði við hæð Klifsins, fjallsins fyrir aftan með möstrunum. Klifið er 228 metra hátt eða um 750 fet. skjáskot Fleiri myndskeið sem birst hafa af lágflugi farþegaþotu Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ á laugardag virðast sýna með óyggjandi hætti að flugvélinni var flogið langt undir lögbundinni lágmarksflughæð. Forstjóri Icelandair segir félagið líta málið mjög alvarlegum augum en það er núna komið til rannsóknar Samgöngustofu.
Í kvölfréttum Sýnar mátti sjá flugferilinn yfir Heimaey. Flugvélin var að koma frá Frankfurt á leið til Keflavíkur þegar farþegum var tilkynnt að þar sem þetta væri síðasti starfsdagur flugstjórans hyggðist hann fljúga lágflug yfir heimabæ sinn. Áætlaður flugferill út frá myndskeiðum.Grafík/Hjalti Freyr Ragnarsson Farþegar heyrast dáðst að útsýninu og ekki er að heyra að neinn ótti hafi verið um borð á myndböndum sem dreift hefur verið á netinu af fluginu en það hefur vakið heimsathygli. Horft úr flugvélinni til Heimakletts, hæsta fjalls Vestmannaeyja.skjáskot Þotan kemur yfir Heimaey úr austri, flýgur yfir nýja hraunið og farþegar vinstra megin horfa í átt að tvöhundruð metra háu Eldfelli og Helgafelli og þotan er enn að lækka flugið áður en hún kemur yfir bæinn. Þegar horft er út um gluggana hægra megin í átt að 280 metra háum Heimakletti má glöggt sjá að flugvélinni er flogið talsvert neðar en hæð klettsins en mælt í fetum er hæð Heimakletts um 900 fet. Lögbundin lágmarkshæð flugvéla yfir byggð er eitt þúsund fet og þegar horft er niður á húsin í bænum má vel gera sér í hugarlund að fólki þar hafi brugðið. Eins þegar Klifið og fjöllin í kringum Herjólfsdal birtast sést að flugvélinni er flogið mun lægra en hæð fjallanna og hafa glöggvir flugáhugamenn áætlað að hún hafi farið niður í 300 fet eða um eitthundrað metra. Icelandair sendi síðdegis frá sér yfirlýsingu þar sem forstjórinn Bogi Nils Bogason segir félagið líta málið mjög alvarlegum augum. Lágflugið hafi hvorki verið á vitorði né með heimild stjórnenda félagsins. Það hafi verið tilkynnt til Samgöngustofu og lögreglu um leið og upplýsingar bárust. Félagið segist ekki tjá sig nánar um málið á meðan á rannsókn stendur. Gögn úr flugritum vélarinnar munu væntanlega gefa nákvæmari mynd af því sem gerðist. Flugritar ættu að segja til um flughæðina og gefa mynd af samtölum flugstjórans og aðstoðarflugmannsins, sem gæti talist samábyrgur, þótt flugstjórinn beri höfuðábyrgð á fluginu og hafi síðasta orðið um allar ákvarðanir um borð. Útsýni flugfarþega yfir grunnskólann og Landakirkju.skjáskot Flugstjórinn varð 65 ára í dag en hann var í sínu síðasta flugi sem atvinnuflugmaður hjá Icelandair. Atvinnumissir eða skírteinismissir mun því lítil áhrif hafa á hans hagi. Öðru máli gegnir um aðstoðarflugmanninn en upplýsingafulltrúi Icelandair vildi síðdegis engu svara um það hvort aðstoðarflugmaðurinn hefði verið sendur í tímabundið leyfi. En hafi menn gerst þarna sekir um brot á lögum, til hvaða refsinga yrði gripið? Flugvélin yfir Hásteinsvelli. Blátindur ofan Herjólfsdals lengst til vinstri er 268 metra hárskjáskot Samgöngustofa hefur heimild í loftferðalögum til að þess að svifta menn flugskírteininu, bæði tímabundið og varanlega. Samgöngustofa hefur einnig ríflegar sektarheimildir og getur sektað einstaklinga um allt að átta milljónir króna. Samgöngustofa getur einnig kært mál áfram til lögreglu teljist brot meiriháttar. Lögreglu er hins vegar bannað samkvæmt alþjóðareglum að nýta gögn úr flugritum sem sönnunargögn í sakamáli, þau má eingöngu nýta í þágu bætts flugöryggis.
Icelandair Vestmannaeyjar Boeing Fréttir af flugi Lögreglumál Samgöngur Lágflug Icelandair yfir Vestmannaeyjum Tengdar fréttir „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Forstjóri Icelandair segir að verklag og reglugerðir verði áréttaðar við starfsfólk flugfélagsins eftir að reyndur flugstjóri ákvað án samráðs við flugfélagið að fljúga í lágflugi yfir Vestmannaeyjum á laugardaginn. Málið er á borði lögreglu. 13. apríl 2026 16:08 Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Samgöngustofa hefur hafið rannsókn á lágflugi farþegaþotu Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ á laugardag. Ráðamenn Icelandair líta atvikið mjög alvarlegum augum. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum gerir hins vegar lítið úr því og fullyrt er að farþegar um borð hafi fagnað stórkostlegri upplifun. 13. apríl 2026 14:24 „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum ekki hafa sérstaka skoðun á lágflugi flugstjóra Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ um helgina. 13. apríl 2026 08:32 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Sjá meira
„Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Forstjóri Icelandair segir að verklag og reglugerðir verði áréttaðar við starfsfólk flugfélagsins eftir að reyndur flugstjóri ákvað án samráðs við flugfélagið að fljúga í lágflugi yfir Vestmannaeyjum á laugardaginn. Málið er á borði lögreglu. 13. apríl 2026 16:08
Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Samgöngustofa hefur hafið rannsókn á lágflugi farþegaþotu Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ á laugardag. Ráðamenn Icelandair líta atvikið mjög alvarlegum augum. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum gerir hins vegar lítið úr því og fullyrt er að farþegar um borð hafi fagnað stórkostlegri upplifun. 13. apríl 2026 14:24
„Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum ekki hafa sérstaka skoðun á lágflugi flugstjóra Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ um helgina. 13. apríl 2026 08:32