„Allt í einu var munurinn orðinn alltof mikill“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 2. apríl 2026 20:43 Stefán Árnason var gríðarlega stoltur af sínum leikmönnum að leik loknum. vísir/Viktor Freyr Afturelding féll úr leik í úrslitakeppni Olís-deildar karla í kvöld eftir 32-24 tap gegn Haukum í oddaleik á Ásvöllum. Stefán Rúnar Árnason, þjálfari Aftureldingar, hrósaði Haukum fyrir vel útfærðan leik en sagðist jafnframt stoltur af sínu liði. „
Við áttum í erfiðleikum með að spila vörn á móti þeim í dag,“ sagði Stefán eftir leikinn en munurinn var mestur ellefu mörk á milli liðanna. Það var jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik þrátt fyrir að Haukar virtust alltaf leiða með einu eða tveimur mörkum. Haukar tóku hins vegar öll völd á leiknum í seinni hálfleik. „Það kemur kafli þarna í seinni hálfleik þar sem við fáum of mikið af brottvísunum og annað hvort töpum boltanum eða klikkum á dauðafærum. Allt í einu var munurinn orðinn alltof mikill of snemma. Við hefðum þurft að geta haldið þessum leik jöfnum aðeins lengur.“ Stefán leit til baka og sagði að liðið hefði mögulega getað gert betur í deildarkeppninni og tryggt sér heimaleikjaréttinn því það sé erfitt að spila oddaleik á útivelli. „Við förum kannski illa að ráði okkar í deildarkeppninni að ná ekki að enda ofar og vera með heimaleikjaréttinn. Það er erfitt að koma á Ásvelli í oddaleik og þurfa að vinna.“ „Þetta er eitthvað sem við lærum af. Við erum með gjörbreytt lið frá því í fyrra og erum með marga unga leikmenn í stórum hlutverkum. Það eru margir í liðinu sem hafa bætt sig gríðarlega í vetur og það hafa verið miklar framfarir hjá leikmönnum.“ Þrátt fyrir að vera úr leik sagðist hann stoltur af leikmönnum sínum sem hafa gert sig gildandi í Olís-deildinni í vetur. „Þetta er verkefni hjá okkur sem er til nokkurra ára. Við stigum mjög stórt skref í vetur með margt og ég er hrikalega stoltur af liðinu mínu og hvernig við spiluðum. Auðvitað hefðum við mátt enda þetta betur en það eru ótrúlega margir leikmenn hjá mér sem hafa tekið risa skref í átt að því að verða klassa Olís-deildar leikmenn og við munum byggja á því á næsta tímabili.“
Afturelding Olís-deild karla Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Fleiri fréttir Tileinkaði Úkraínu sigurinn Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum John Barnes greindist með krabbamein Wales jafnaði metin í lokin Besta gengi Ítala á risamóti Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Sótti Freyr of marga Íslendinga til Brann? Fær verðlaun sem bæði Messi og Ronaldo fengu á sínum tíma Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Einn sá besti færir sig um set Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Sjáðu mörkin: Norðmenn rúlluðu yfir Svía og glæsimark Isak „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Sjá meira