Uppgjörið: Haukar - Afturelding 32-24 | Hafnfirðingarnir sendu Aftureldingu í sumarfrí Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 2. apríl 2026 17:16 Freyr Aronsson var frábær í dag eins og venjulega og skilaði níu mörkum fyrir Hauka. Vísir/Anton Brink Haukar tryggðu sér sæti í kvöld í undanúrslitum úrslitakeppni Olís- deildar karla. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Hauka tóku öll völd á vellinum í síðari hálfleik og unnu öruggan átta marka sigur, 32-24. Haukar byrjuðu leikinn vel og voru komnir með þriggja marka forystu á fyrsta þriðjungi hálfleiksins. Aftureldingu tókst hægt og rólega að jafna metin en þá svöruðu Haukar samstundis og náðu aftur þriggja marka forystu. Afturelding var þó aldrei langt undan út hálfleikinn en það munaði alltaf einu til tveimur mörkum á liðunum. Staðan var 15-13 fyrir Haukum þegar liðin gengu til búningsherbergja. Í síðari hálfleik náðu Haukar enn betri tökum á leiknum á juku forskot sitt jafn og þétt. Varnarleikur liðsins var þá öflugur og Afturelding virtist ekki hafa nein svör sóknarlega. Niðurstaðan átta marka sigur Hauka og liðið sendir Aftureldingu í sumarfrí. Atvik leiksins Það var skemmtilegt þegar Darri Aronsson var byrjaður að labba af velli áður en dómarar leiksins dæmdu á hann tveggja mínútna brottvísun. Vissi alveg upp á sig sökina drengurinn. Stjörnur og skúrkar Freyr Aronsson var allt í öllu í fyrri hálfleik og var kominn með sjö mörk þegar flautað var til hálfleiks. Hann endaði svo með níu mörk og fjórar stoðsendingar. Hergeir Grímsson og Skarphéðinn Ívar Einarsson komu þar næstir með fjögur mörk hvor. Árni Bragi Eyjólfsson var markahæstur hjá gestunum með sjö mörk. Stemning og umgjörð Það var góð mæting á leikinn og stemning beggja megin í stúkunni. Dómarar Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæmdu leikinn í dag. Engin vafaatriði og ekki mikið kvartað undan dómgæslunni í dag. Olís-deild karla Haukar Afturelding
Sjáðu slagsmálin í Grindavík: Stuðningsmenn stukku út á gólf og lögreglan skarst í leikinn Körfubolti
Sjáðu slagsmálin í Grindavík: Stuðningsmenn stukku út á gólf og lögreglan skarst í leikinn Körfubolti