Offramboð af raforku, ekki orkuskortur Guðmundur Hörður Guðmundsson skrifar 31. mars 2026 09:00 Umræðan um orkuskort hefur verið svo yfirþyrmandi á síðustu árum að ég verð eiginlega alltaf jafn hissa þegar ég fæ ljós á náttborðslampann minn að morgni dags. Með linnulausum áróðri Landsvirkjunar, Landsnets, Samtaka iðnaðarins og þorra stjórnmálastéttarinnar hefur almenningi sem býr í raforkuríkasta landi heims verið talin trú um að það sé bara alls ekki víst að hann geti gengið að raforku vísri. Þessi hagsmunahópur, sem við getum kallað orkuskortshóp, hefur haft greiðan aðgang að fjölmiðlum þar sem bölsýnisboðskapur er jafnan vinsælli en yfirveguð og jarðbundin umræða. Á þessum bölsýnisboðskap hefur þessi hópur svo byggt kröfu sína um að virkja hratt og mikið og ef nokkur vogar sér að mótmæla er viðkomandi jafnvel sakaður um að ráðast að lífskjörum þjóðarinnar. Það kann því að koma mörgum jafn mikið á óvart og ljósið á náttborðslampanum að í vetur var ný orkuspá kynnt. Í þetta skiptið fór nefnilega óvenju lítið fyrir kynningunni í fjölmiðlum, líklega vegna þess að spáin gengur þvert á þá bölsýnisspá sem orkuskortshópurinn hefur boðað á undanförnum árum. Helstu niðurstöður orkuspár eru nefnilega að minni eftirspurn sé hjá stórnotendum en áður, áætlanir í landeldi hafi dregist, áform um rafeldsneyti hafi tafist, hófleg aukning sé í raforkuþörf vegna orkuskipta og notkun gagnavera hafi beinlínis dregist saman. Almenn notkun vex hægar en spár gerðu ráð fyrir, m.a. vegna bættrar orkunýtni. Þá hafa orkuskipti í samgöngum á landi gengið hægar en ætlað var og lítil sem engin orkuskipti hafa orðið í flugi og á hafi. Miðað við þetta ættum við að geta andað léttar og hætt að hafa áhyggjur af orkuskortinum og sammælst um að það sé engin knýjandi þörf á að virkja t.d. fossana í efri hluta Þjórsár, Jökulárnar í Skagafirði, Urriðafoss eða reisa Kjalölduveitu í jaðri Þjórsárvera eða Skrokkölduvirkjun í hjarta hálendisins á mörkum Vatnajökulsþjóðgarðs. Auk þess sem ný orkuspá bendir til mun minni aukningar á eftirspurn en orkuskortshópurinn boðaði þá hafa að auki heyrst þær raddir að verðhækkanir á raforku séu farnar að tefla framtíð íslenskrar stóriðju í tvísýnu. Þannig sagði forstjóri Elkem nýverið að samkeppnishæfni Íslands væri brostin vegna raforkukostnaðar og að ef haldið yrði áfram á sömu braut muni „fyrirtækin leggjast af á Íslandi hvert á fætur öðru.“ Þannig gæti þurft að loka verskmiðju Elkem eftir þrjú ár. Forstjóri Rio Tinto sagði líka í upphafi árs að hátt raforkuverð væri orðið akkillesarhæll fyrir álverið. Í svari forstjóra Landsvirkjunar við þessum umkvörtunum kom fram að fyrirtæki og almenningur þyrftu að búa sig undir enn frekari verðhækkanir á raforku vegna þess að þegar sé búið að nýta hagstæðustu virkjanakostina. Það eru því mörg merki á lofti um að stóriðjan dragi úr raforkukaupum hér á landi á næstu árum og áratugum. En orkuskortshópurinn mun auðvitað ekki sætta sig við þann veruleika að hér sé gnægð orku og að teikn séu á lofti um offramboð og hengir sig hér eftir sem hingað til í svonefnda háspá orkuspár sem gerir ráð fyrir ýktustu hugmyndum þeirra sem kerfið kallar „þróunaraðila“. Það er einmitt á slíkum „þróunaraðilum“ sem íslenskir skattgreiðendur, lífeyrissjóðir og bankar hafa tapað milljörðum í fjárfestingum í tengslum við kísilver og álver sem aldrei tóku til starfa eða voru vandræðalega skammlíf í Helguvík, á Bakka og á Grundartanga. Orkumálaráðherra fer nú fremstur í hópi áróðursmeistara orkuskortshópsins og hefur m.a. rutt í gegn frumvarpi á Alþingi um byggingu Hvammsvirkjunar, einnar óhagkvæmustu virkjunar sem reist hefur verið hér á landi. Fái þessi hópur að ryðjast áfram óhindrað yfir umræðuna og íslenska náttúru þá eru allar líkur á að innan fárra ára sitji raforkukaupendur - almenningur og fyrirtæki - uppi með mjög miklar verðhækkanir á raforku og offjárfestingar í virkjunum. Þess vegna er afar mikilvægt að náttúrurverndarfólk sýni vilja sinn í verki og fjölmenni í grænu gönguna 23. apríl næstkomandi til að vekja ríkisstjórnina til vitunar um þær ógöngur sem hún hefur ratað í á sviði náttúrurverndar. Höfundur er fyrrverandi formaður Landverndar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Hörður Guðmundsson Orkumál Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar